Lífið

Samfélagsmiðlagúrú heimsækir Ísland

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Oliver safnar listaverkum og á fjölmörg eftir íslenska listamenn.
Oliver safnar listaverkum og á fjölmörg eftir íslenska listamenn.
Samfélagsmiðlagúrúinn Oliver Luckett heldur fyrirlestur hér á landi 10. apríl í Háskólabíói þar sem hann mun fjalla um framtíð samfélagsmiðla. Fyrirlesturinn er hluti hálfsdags ráðstefnu á vegum Ysland en einnig munu Joeri Van den Bergh og Mattias Behrer, höfundar bókarinnar How Cool Brands Stay Hot: Branding to Generation Y, fjalla um Y-kynslóðina og hvernig fyrirtæki ná til hennar.

Oliver er stofnandi og framkvæmdastjóri theAudience og er mikill Íslandsvinur. Hann tók meira að segja þátt í piparkökuhúsasamkeppni Jóns Gnarr sem hann hélt á afmæli sínu árið 2011 en laut í lægra haldi fyrir Björk Guðmundsdóttur.

theAudience er í fararbroddi sem efnismiðlunar- og dreifingarnet fyrir afþreyingarfyrirtæki sem vilja ná til stórra aðdáendahópa og ná árangri í notkun samfélagsmiðla. Oliver neitar að gefa upp hverjir kúnnar theAudience eru en þeir sem þekkja til tónlistar- og kvikmyndabransans segja að viðskiptavinir hans séu til dæmis Mark Wahlberg, Charlize Theron, Jack Black, Eddie Murphy, Hugh Jackman, Usher, Pitbull, Russell Brand og LMFAO. Þá sá hann líka um samfélagsmiðlaherferð fyrir kvikmyndina Ted og tónlistarhátíðina Coachella. Stjörnurnar greiða Oliver mánaðargjald fyrir þjónustuna sem getur verið mismunandi. Það lægsta er um fimm þúsund dollarar, rúmlega hálf milljón króna.

Miðasala á hálfsdags ráðstefnuna hefst í dag en á ráðstefnunni verða niðurstöður nýrrar könnunar MMR um svölustu vörumerki Íslands kynntar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.