Menning

Seremónía í Salnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigurður Bjarki, Una, Helga Þóra og Þórunn Ósk.
Sigurður Bjarki, Una, Helga Þóra og Þórunn Ósk.
Þetta er spennandi dagskrá. Blanda af glænýrri og hefðbundinni strengjakvartetts-tónlist,“ segir Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari um efnisskrá tónleika í Salnum á sunnudaginn klukkan 16 með Strokkvartettinum Sigga.



Þar verður frumflutt nýtt verk eftir Hauk Tómasson, Seremónía, sem er fyrir rafmagnaðan strengjakvartett.

„Við spilum mjög nákvæmt og mjög lágstemmt og svo erum við mögnuð upp. En afganginn af prógramminu spilum við órafmagnað,“ lýsir Una og á þar við tónverkið Langur skuggi eftir Hauk og strengjakvartettana ópus 76 eftir Joseph Haydn og númer 1 eftir Sergei Prokofjev sem Una segir allt ótrúlega flott stykki.



Strokkvartettinn Siggi er, auk Unu, skipaður Helgu Þóru Björgvinsdóttur á fiðlu, Þórunni Ósk Marinósdóttur á víólu og Sigurði Bjarka Gunnarssyni á selló. Þau starfa öll hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.



„Við spiluðum fyrst saman undir þessu nafni árið 2012 en höfum þekkst mun lengur og unnið saman í ýmsum verkefnum,“ segir Una, sem finnst nafn Sigga passa best á kvartettinn.

Bent á að Una hefði verið ágætt líka segir hún hlæjandi: „Já, nema það er bara eins og stytting fyrir einhver alþjóðleg samtök.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.