Menning

Kraftbirtingarhljómur guðdómsins vakti mikla hrifningu í Berlín

Rut Sigurðardóttir skrifar
Ragnar Kjartansson með móður sinni, Guðrúnu Ásmundsdóttur.
Ragnar Kjartansson með móður sinni, Guðrúnu Ásmundsdóttur. Vísir/Rut Sigurðardóttir
Það var margt um manninn þegar listamaðurinn Ragnar Kjartansson frumsýndi nýjasta verk sitt „Der Klang der Offenbarung des Göttlichen“ eða „Kraftbirtingarhljómur guðdómsins“ í hinu fornfræga og sögulega leikhúsi Volksbühne í Berlín.

Fjöldi Íslendinga kom sérstaklega til þess að vera viðstaddur frumflutninginn og alþjóðlega listasenan sýndi viðburðinum mikinn áhuga.

Titill verksins vísar í kafla í Heimsljósi Halldórs Laxness, en eins og hann gefur til kynna skipar hljóð stóran sess í verkinu. Kjartan Sveinsson semur tónlistina fyrir verkið sem er skrifað fyrir strengjasveit og kór. Davíð Þór Jónsson fer með hljómsveitarstjórn, en það eru sinfóníuhljómsveit Babelsberg og kór sem flytja tónlistina.

Fagnaðarlæti Davíð Þór Jónssyni, Kjartani Sveinssyni og Ragnari Kjartanssyni var vel fagnað að sýningu lokinni.


Það er óhætt að segja að framsetning verksins sé fremur óhefðbundin þar sem þetta er sviðsverk án leikara, byggt aðeins á leikmynd og tónlist. Upplifunin verður því nokkuð ólík þeirri að fara á leiksýningu eða tónleika.

Setið var í hverju sæti þetta opnunarkvöld og eftirvæntingin var mikil. Ef marka má dynjandi lófatak að sýningu lokinni er auðvelt að fullyrða að áhorfendur hafi verið ánægðir með flutninginn og verkið staðið fyllilega undir væntingum.

Þína skál Ragnar Kjartansson skálar með áhorfendum að sýningu lokinni.


Þríeykið, þeir Ragnar, Kjartan og Davíð Þór, voru mjög ánægðir með móttökurnar, enda var þeim gríðarlega fagnað þegar þeir þökkuðu áhorfendum, hljómsveit, kór og sviðsmyndahönnuði fyrir frammistöðu kvöldsins.

Að sýningu lokinni brá Ragnar Kjartansson sér svo í gervi Rassa Prump og tók nokkur lög með félögum sínum, gestum til mikillar skemmtunar.

Galleríistarnir Ragnar með galleríistum sínum, Berki Arnarsyni hjá i8 og Roland Augustine hjá Luhring Augustine í New York.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.