Menning

Verdi í Grindavík

Sýningin Verdi og aftur Verdi hefur slegið rækilega í gegn og fékk 5 stjörnur í Fréttablaðinu.
Sýningin Verdi og aftur Verdi hefur slegið rækilega í gegn og fékk 5 stjörnur í Fréttablaðinu. Vísir/Pjetur
Nú gefst Grindvíkingum tækifæri til að sjá „Verdi og aftur Verdi“ sem hefur slegið rækilega í gegn í vetur. Sýningin verður á dagskrá menningarviku Grindavíkur og fer fram í Grindavíkurkirkju á morgun klukkan 15.



Tilefni sýningarinnar var 200 ára afmælisveisla tónskáldsins Verdis. Í sýningunni býður Verdi sjálfur, túlkaður af Randveri Þorlákssyni, áheyrendum til afmælisveislu og rifjar um leið upp hitt og þetta frá ævi sinni á milli þess sem flutt eru atriði úr verkum skáldsins.

Sveinn Einarsson leikstýrir sýningunni og Antonia Hevesi bregður sér í gervi hljómsveitarinnar með aðstoð flygilsins. Söngvarar eru þau Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sópran, Egill Árni Pálsson, tenór, Erla Björg Káradóttir, sópran, Hörn Hrafnsdóttir, mezzó-sópran, Rósalind Gísladóttir, sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir, mezzó-sópran, og Valdimar Hilmarsson, baritón. Gestasöngvari er Jóhann Smári Sævarsson, bassi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.