Menning

Setja óperuna í skondinn búning

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Bylgja Dís Gunnarsdóttir í hlutverki nornarinnar bragðar á kjötsúpunni.
Bylgja Dís Gunnarsdóttir í hlutverki nornarinnar bragðar á kjötsúpunni. Mynd/ Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir
Allir þekkja söguna um Hans og Grétu. Óp-hópurinn vill kynna heim óperunnar fyrir börnum á skemmtilegan og ævintýralegan hátt og sýnir barnaóperuna um þau Hans og Grétu tvívegis á morgun í Salnum, klukkan 11 og klukkan 13.30.

Sýningin er um klukkustundarlöng, verkið var stytt í þeim tilgangi að gera það aðgengilegra fyrir börn á öllum aldri.

Tónlist Humperdincks og texti systur hans, Adelheid Wette, setja óperuna Hans og Grétu í skondinn búning en um leið vekur hún fólk sterkt til umhugsunar um lífið og tilveruna.

Í tónlistinni leynast stef sem eru Íslendingum góðkunn eins og Það búa litlir dvergar í björtum sal. Þegar að þeim hluta sýningarinnar kemur er gestum boðið að taka þátt og syngja með.

Í uppsetningarferlinu íslenskaðist fleira en texti óperunnar því fjölskyldan rekur lopaverkstæði og nornin er ekki með bakaraofn eins og í upphaflegu sögunni heldur risastóran pott sem hún notar til að sjóða kjötsúpu.

Leikstjóri er Maja Jantar. Hún er hollensk en gift Íslendingi og því með sterk tengsl við landið. Hún hefur sérhæft sig í uppsetningu barnaópera.

Ekkert hlé er á sýningunni en hún verður samt brotin upp því 2. þáttur verður sýndur í anddyri Salarins og er því foreldrum, öfum og ömmum bent á að gott getur verið að kippa með sér púðum til að sitja á í öðrum þætti.

Sýningar eru líka fyrirhugaðar sunnudaginn 30. mars klukkan 13.30 og 16.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.