Flytja fyrstu kammerverkin fyrir horn 28. mars 2014 11:30 Hornleikarinn Ella Vala Ármannsdóttir leikur með Nordic Affect á Kjarvalsstöðum.
Kammerhópurinn Nordic Affect heldur sína fyrstu tónleika í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum á sunnudaginn klukkan 20. Á tónleikunum kemur náttúruhornleikarinn Ella Vala Ármannsdóttir fram með hópnum og leikur nokkur af fyrstu kammerverkunum sem rituð voru fyrir hornið, eftir þá Telemann, Graun og Bodinus. Einnig eru á efnisskránni verk eftir Händel, Couperin og Philidor. Nordic Affect skipa að þessu sinni: Halla Steinunn Stefánsdóttir á barokkfiðlu, Georgia Browne á barokkþverflautu, Sigurður Halldórsson á barokkselló og Guðrún Óskarsdóttir á sembal. Nordic Affect er tónlistarhópur Reykjavíkur árið 2014 og var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs í fyrra. Hann var jafnframt valinn flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Hópurinn hefur haldið úti vetrartónleikaröð sinni frá árinu 2007. Tónleikaröðin 2014 er undir yfirskriftinni Nordic Affect +1 og verður samstarf við utanaðkomandi aðila í fyrirrúmi á árinu. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og aðgangur er ókeypis.
Menning Mest lesið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Menning Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira