Menning

Verur í viðjum

Maribel Longueira. Sýningin samanstendur af 21 ljósmynd og beinir augum að mengun sjávar og hvernig það vaxandi vandamál birtist í formi sjórekins rusls.
Maribel Longueira. Sýningin samanstendur af 21 ljósmynd og beinir augum að mengun sjávar og hvernig það vaxandi vandamál birtist í formi sjórekins rusls. MYND: Frances Torres
Sýning á verkum spænsku listakonunnar Maribel Longueira verður opnuð á Háskólatorgi á morgun klukkan 16.

Sýningin samanstendur af 21 ljósmynd og beinir augum að mengun sjávar og hvernig það vaxandi vandamál birtist í formi sjórekins rusls sem finna má á ströndum landa.

Í sýningunni ljær listakonan viðfangsefninu ákveðið mannlegt yfirbragð og form þannig að ruslið horfist í bókstaflegri merkingu í augu við þann sem skoðar myndina.

Listakonan er frá Galisíu á norðvestanverðum Spáni en þar eru fiskveiðar undirstaða samfélagslegrar velferðar, atvinnulífs og menningar. Þar er fólk, ekki síst eftir hið gríðarlega Prestige-mengunarslys árið 2002, vel meðvitað um mikilvægi þess að spornað sé gegn mengun í lífkerfi sjávar, bæði heima og hnattrænt.



Eiginmaður Maribel er galisíska skáldið Francisco X. Fernández Naval og verður hann með í för. Við opnunina mun hann, ásamt íslensk-galisíska skáldinu Elíasi Knörr flytja nokkur ljóð sem tengjast efni sýningarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.