Menning

Blái hnötturinn fer sigurför um heiminn

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason sett á svið í Danmörku og Póllandi á næstunni.
Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason sett á svið í Danmörku og Póllandi á næstunni. vísir/valli
„Þetta er mjög skemmtilegt, það er svo gaman að sjá nýtt „take“ á þessu,“ segir rithöfundurinn Andri Snær Magnason en verkið hans, Sagan af bláa hnettinum verður sett á svið í einu virtasta leikhúsi Danmerkur á næsta leikári, Borgarleikhúsinu í Álaborg.

Þá er einnig verið að setja verkið upp í Gdansk í Póllandi þann 17. maí næstkomandi. „Erling Jóhannesson er að leikstýra þessu þar, þetta er samvinnuverkefni í Póllandi,“ bætir Andri Snær við. Hljómsveitin Múm, sem gerði tónlistina við upphaflegu uppsetninguna á verkinu í Þjóðleikhúsinu árið 2001, er að búa til nýja tónlist fyrir uppsetningu Bláa hnattarins í Póllandi.

Leikritið hefur fyrir verið sett upp í Toronto, Lahti og Vasa í Finnlandi, Maxim Gorky í Berlín, Lucerne í Sviss og fjöldi áhugaleikhúsa hefur sett verkið upp.

Blái hnötturinn er tilnefnd til UKLA-verðlaunanna í Bretlandi en verðlaunin eru ein virtustu barnabókaverðlaun Bretlands. „Ég held að þetta sé eina útlenska bókin sem tilnefnd er.“

Sagan af bláa hnettinum er komin út á 30 tungumálum og enn bætist við tungumálin. Hún kom fyrst út árið 1999. „Í umsókninni minni um Listamannalaunin árið 1998, stendur að ég ætli að skrifa barnabók sem verður endurprentuð í 200 ár,“ segir Andir Snær léttur í lundu. Sagan af Bláa hnettinum er komin út á 30 tungumálum og enn bætist við tungumálin.

„Bókin er að koma út á pólsku í næstu viku og þá er hún einnig að koma út á kínversku í Taívan á næstunni. Það er alltaf gaman að koma til Asíu, næsta skref er svo bara að fara gefa bókina út í Norður Kóreu,“ segir Andri Snær og hlær. Bókin er komin út í Kína og í Suður Kóreu.

Andri Snær er með mörg járn í eldinum en drög að fjórum verkum eru í bígerð. „Ég er með svona fimm ára áætlun og er með fjögur stór verkefni í pípunum en veit ekki nákvæmlega í hvaða röð þau munu fæðast.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.