Menning

Hrói höttur stelur senunni

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Gísli Örn Garðarsson
Gísli Örn Garðarsson Vísir/Hörður
Sýningin Hrói höttur í uppsetningu Vesturports hefur ferðast víða.

Í gær hlaut sýningin þrjár tilnefningar til hinna þekktu Heddu-verðlauna í Noregi og á dögunum fimm tilnefningar til 32nd Annual Elliott Norton Awards í Bandaríkjunum, fyrir bestu sýningu, leikstjórn, dans, leikmynd, búninga og hljóð.

Sýningin er leikgerð Davids Farr eftir sögu Hróa hattar, einnar þekktustu þjóðsagnapersónu Englands, sem rændi frá þeim ríku og gaf hinum fátæku, nema í þessari útgáfu rænir hann hina ríku en heldur verðmætunum fyrir sig sjálfan.

Listamannateymið samanstendur af Gísla Erni Garðarssyni, sem leikstýrir, meðleikstjóri og danshöfundur er Selma Björnsdóttir, leikmyndahönnuður er Börkur Jónsson, Högni Egilsson semur tónlistina og Björn Helgason er ljósahönnuður sýningarinnar.

Vesturport hefur sett sýninguna upp í The Royal Shakespeare Company í Bretlandi, í einu sögufrægasta leikhúsi Norðmanna, Ibsen-leikhúsinu, Den Nationale Scene í Bergen og í The American Repertory Theater í Boston í Massachusetts en leikhúsið var á lista Time Magazine yfir þrjú bestu leikhúsin í Bandaríkjunum árið 2003.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.