Menning

Hulda Hlín sýnir á Seltjarnarnesi

Hulda Hlín
Litadýrð sem opnar hugræna heima.
Hulda Hlín Litadýrð sem opnar hugræna heima.
Hulda Hlín Magnúsdóttir, opnar í dag klukkan 17 myndlistarsýninguna Hugrænir litheimar í Eiðisskeri, sýningarsal Bókasafns Seltjarnarness.



Á sýningunni má sjá olíumálverk og teikningar þar sem draumkenndri veröld í sterkum litum bregður fyrir. Olíumálverkin eru flest stór í sniðum og sum verkin eru innblásin af íslenskri náttúru en litir og form breyta þeim í annan og hugrænni stað, að því er fram kemur í tilkynningu.



Hulda Hlín Magnúsdóttir ólst upp í Kaupmannahöfn, París og Reykjavík og nam málaralist í Flórens, Feneyjum, Bologna og Róm. Hún útskrifaðist í málaralist með hæstu einkunn og láði frá Accademia di Belle Arti í Róm og hefur haldið einka- og samsýningar hérlendis og á Ítalíu. Hulda Hlín lauk mastersnámi í listasögu frá Bolognaháskóla með mastersritgerð á sviði litafræði og merkingarfræði hins sjónræna.



Sýningin verður opin frá mánudegi til fimmtudags frá klukkan 10 til 19 og á föstudögum frá klukkan 10 til 17.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.