Stóla á ungu strákana sína í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2014 06:30 Pétur Rúnar Birgisson er fæddur árið 1996. Vísir/Valli
Nýliðar Tindastóls hafa byrjað vel í Dominos-deildinni í ár og eru Stólarnir eitt af fjórum liðum sem hafa unnið tvo fyrstu leiki sína. Tindastólsliðið vann endurkomusigur á Stjörnunni á útivelli í fyrstu umferð og fylgdi því síðan eftir með sannfærandi heimasigri á Þór í Síkinu. Tveir ungir og stórefnilegir leikmenn, hinn 20 ára Ingvi Rafn Ingvarsson og hinn 18 ára Pétur Rúnar Birgisson, fá mikið ábyrgðarhlutverk á Sauðárkróki í vetur og eru báðir byrjunarliðsbakverðir liðsins. Strákarnir hafa staðið sig vel í þessum tveimur fyrstu leikjum og eru báðir meðal efstu manna í stoðsendingum eftir tvær fyrstu umferðirnar. Ingvi Rafn átti 11 stoðsendingar í sigrinum á Þór og hefur gefið flestar stoðsendingar (14 eða 7,0 í leik) af öllum leikmönnum deildarinnar en Pétur Rúnar sem var efstur í liðinu í stoðsendingum í sigrinum í Garðabæ er með þremur stoðsendingum minna í 3. til 6. sæti.Ingvi Rafn Ingvarsson er fæddur árið 1994.Vísir/ValliPétur Rúnar skoraði 21 stig í sigrinum á Þór og var þá næststigahæsti leikmaður Tindastólsliðsins en hann hitti þá meðal annars úr fjórum af sjö þriggja stiga skotum sínum. Ingvi Rafn hitti ekki vel í þeim leik en tók fimm sóknarfráköst auk 6 stiga og 11 stoðsendinga. Reynslumeiri leikmenn Stólanna spila allir nær körfunni en þeir Ingvi og Pétur og þó að Darrel Keith Lewis hjálpi vissulega mikið við leikstjórnina þá er gaman að sjá Tindastólsmenn stóla á ungu strákana sína í Dominos-deildinni í vetur.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Fótbolti Clark í sérflokki en þarf að byrja snemma eins og Gunnlaugur Árni Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Sjá meira