Börnin fá hugmynd um jólin til forna 22. nóvember 2014 10:00 Á sýningunni eru stækkaðar myndir úr bókinni. Þá er hægt að hlusta á hljóðbrot og leika sér með muni sem tengjast sögunni. Sýningin opnar í dag og stendur út þrettándann. MYND/VALLI
Jólasýning Þjóðminjasafnsins í ár byggir á barnabókinni Jólin hans Hallgríms eftir Steinunni Jóhannesdóttur og teikningum Önnu Cynthiu Leplar. Þar verða stækkaðar myndir úr bókinni, hljóðbrot og eftirgerðir af munum frá fyrri tíð sem börnin mega snerta og leika sér með. Jólin hans Hallgríms kom út hjá Forlaginu fyrir skemmstu. Bókin segir frá jólaundirbúningnum á Gröf á Höfðaströnd þar sem Hallgrímur Pétursson ólst upp. Bókinni er ætlað að veita börnum sem fullorðnum innsýn inn í bernsku Hallgríms og þær aðstæður sem hann ólst upp við í faðmi stórrar fjölskyldu fyrir tæplega fjögur hundruð árum, en í ár eru einmitt fjögur hundruð ár frá fæðingu Hallgríms. Í bókinni er hann sjö ára. Hún er ríkulega myndskreytt og gefa myndirnar lesendum hugmynd um hvernig fólk leit út og hvernig hlutirnir gengu fyrir sig.Á sýningunni verður meðal annars hægt að skoða leikföng fyrri tíma og nútímaútgáfu af gripahúsinu í Betlehem.Gripir sem tengjast sögunni Sýningin verður opnuð á Torginu á jarðhæð Þjóðminjasafnsins á milli kaffihússins og safnbúðarinnar. „Þar erum við vön að setja upp jólasýningu ár hvert og leggjum upp með að vera með gagnvirka sýningu þar sem börnin fá að snerta sýningarmuni,“ segir Ólöf Breiðfjörð, kynningarstjóri Þjóðminjasafnsins. „Á sýningunni verða stækkaðar myndir úr bókinni ásamt gripum sem tengjast sögunni. Þarna verða meðal annars leikföng fyrri tíma eins og leggir og skeljar ásamt nútímaútgáfu af gripahúsinu í Betlehem. Þetta eru ekki sýningarmunir heldur endurgerðir sem börnin mega óhindrað handleika. Þá verður hægt að hlusta á jólasálminn Nóttin var sú ágæt ein sem er einn þerra sálma sem Hallgrímur lærði sem barn og er enn sungin um hver jól. Eins hafa safnkennarar Þjóðminjasafnsins unnið ratleik um safnið útfrá sýningunni og verða ýmsar uppákomur henni tengdar á aðventunni.“Myndir Önnu Cynthiu gefa lesendum hugmynd um hvernig fólk leit út og hvernig hlutirnir gengu fyrir sig fyrir fjögur hundruð árum.Anna CynthiaMikil heimildavinna En hvernig er að myndskreyta sögu sem gerist fyrir þetta löngu síðan? „Það þarf að vinna töluverða for- og heimildavinnu. Ég fór á Þjóðminjasafnið og skoðaði einnig alls konar bækur. Bækur sem sýna muni frá fyrri tíð og myndlistarbækur sem sýna lífið á svipuðum tíma. Eins þarf að skoða dýrin og í þessu tilfelli eru það kindurnar og hundurinn sem koma við sögu,“ útskýrir Anna Cynthia, myndskreytir og hönnuður bókarinnar. „Þá reynir maður að finna hluti sem eru enn þá til og hafa lítið breyst og hafa fatnaðinn nokkuð hlutlausan til að tímasetja þetta ekki of nákvæmlega.“ Anna Cynthia skoðaði meðal annars verk myndlistarmanna sem voru uppi á svipuðum tíma og Hallgrímur. „Ég skoðaði meðal annars birtu í húsakynnum, fatnað og útlit fólks,“ útskýrir Anna Cynthia. Til að ná fram andlitsdráttum leit hún sér örlítið nær en eitt af barnabörnum hennar er á áttunda ári. „Hann er ekki beint fyrirmynd en það er hægt að notfæra sér hlutföll og svip.“Fallegur texti Anna Cynthia segir texta Steinunnar sérstaklega fallegan. „Það var gaman að teikna hann og gefa honum líf. Hún lýsir hlutunum vel. Textinn er hvorki væminn né töffaralegur. Þótt bókin sé að hluta trúarleg er ekkert verið að troða neinu ofan í fólk. Þetta er fyrst og fremst falleg og blíð jólasaga.“ Sýningin verður opnuð klukkan tvö í dag og stendur út þrettándann. Á Þjóðminjasafninu er jafnframt fjölbreytt aðventudagskrá sem vert er að vekja athygli á en skemmtanirnar eru allar ókeypis. Má þar nefna jólaratleiki, sýningar og árlega skemmtun með Grýlu og Leppalúða. Hún verður haldin þann 7. desember og bíða margir hennar með eftirvæntingu. Grýla og Leppalúði munu skemmta ásamt Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur söngkonu og hefst dagskráin klukkan 14. Jólasveinarnir koma svo í safnið hver af öðrum frá og með 12. desember klukkan 11 dag hvern.
Jólafréttir Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira