Engin ástæða til þess að leggjast í kör yfir jólin Nanna Árnadóttir íþróttafræðingur skrifar 20. desember 2014 12:00
Nú þegar einungis fimm dagar eru í jól eru líklegast flestir að keppast við að koma heimilinu og heimilisfólkinu í almennilegt stand. Klára að kaupa jólagjafirnar, fara með alla í jólaklippinguna, þrífa heimilið, baka smákökurnar, kaupa í matinn og skreyta jólatréð. Ekki má gleyma öllum jólahlaðborðunum og litlu jólunum þar sem nóg er af mat og víni, áður en sjálf jólahátíðin hefst. Eins og flestir vita standa jólin yfir frá 24. desember til 6. janúar. Á þessu tímabili er nóg af veislum og áti og svo jólamyndaglápi, jólalestri og spilakvöldum með vinum og ættingjum þar sem skrokkurinn er lítið hreyfður. Við skulum þó hafa það hugfast að í desembermánuði, frá því að jólaundirbúningur hefst og þangað til í byrjun janúar, þegar við sprengjum jólin í burtu á þrettándanum, eru einungis fimm hátíðardagar, ekki 37. Margir eiga það til að taka sér frí frá heilbrigðum lífsstíl alla þessa 37 daga og gleyma því eða nota jólin sem afsökun fyrir að borða ekki hollt og hreyfa sig ekki. Það gefur auga leið að það er ekki beinlínis hollt að gera líkamanum það að sprengja sig út af söltum og þungum mat, ásamt sætindum, í svona langan tíma og leyfa sér að detta í algjöran letipakka þar sem mesta hreyfingin sem þú færð er að ganga frá ísskápnum og upp í sófa til þess að hafa það kósí. Að sjálfsögðu er það alltaf gott og blessað að gera sér glaðan dag um jólin, nota hátíðirnar til þess að verja tíma með fjölskyldunni, borða góðan mat og hlaða batteríin fyrir nýja árið. Það er hins vegar svo auðvelt að nýta þennan tíma líka í að halda áfram að byggja líkamann upp til hins betra og koma sterkur inn í nýja árið, í stað þess að hrökklast af stað á nýju ári og ætla sko að fara í „átak“ eftir allt sukkið. Mjög sniðugt er til að mynda að gera það að hefð að fara út í góðan göngutúr á hverjum hátíðardegi með fjölskyldunni og koma þannig endurnærður inn og tilbúinn í næsta jólaboð. Aðrir þurfa á aðeins meira fjöri að halda og því tilvalið að skora á sig og aðra í kringum hátíðarnar að taka eina æfingu á dag áður en haldið er út í daginn, því líkurnar á því að maður fari að sprikla eftir að hafa borðað 450 grömm af hamborgarhrygg, meðlæti, jólaöli og heimagerðum ís eru afar litlar. Hér er dæmi um æfingu sem tekur á öllum líkamanum ásamt þoli. Ég skora á ykkur að taka æfinguna að minnsta kosti alla hátíðardagana. Þið getið til dæmis farið einn hring á aðfangadag, tvo á jóladag, þrjá á annan í jólum, fjóra á gamlársdag og komið svo sterk inn í nýja árið og tekið heila fimm hringi á nýársdag. Þið klárið endurtekningafjölda af öllum æfingum áður en haldið er í næstu. Æfingarnar eru eftirfarandi:1. 20 armbeygjur2. 20 hnébeygjur3. 50 sprellikarlahopp4. 1 mínútu planki5. 20 dýfur á bekk Gangi ykkur vel og gleðileg jól!
Heilsa Mest lesið Mætti dópaður í Kastljós og laug blákalt að alþjóð Lífið Svaraði kallinu frá Ben Stiller Bíó og sjónvarp Best klæddu, flippuðustu og fáklæddustu á Grammy Tíska og hönnun Mætti svo gott sem nakin á rauða dregilinn Lífið Biðu í tvo tíma eftir „McDonalds“ borgurum sem strönduðu í tollinum Lífið Stjörnulífið: Fáklæddar, í hátísku og Palli rúmliggjandi Lífið Víkingur Heiðar vann til Grammy-verðlauna Lífið Gagnrýnir innihaldsefni í skólamat: „Mér vægast sagt brá“ Lífið „Þetta er engin þrautaganga fyrir mig“ Lífið Beyoncé loksins verðlaunuð fyrir bestu plötuna Lífið