Tónlist

FALKrósir sprengja hljóðhimnur í kvöld

Þórður Ingi Jónsson skrifar
AMFJ og koma fram ásamt parinu MGBB í kvöld.
AMFJ og koma fram ásamt parinu MGBB í kvöld. Mynd/Guðmundur Óli Pálmason
„Við höfum yfirleitt verið á jaðrinum enda stendur okkar áhugasvið þar. En árið 2015 færum við okkur aðeins nær miðjunni,“ segir Aðalsteinn Jörundsson, betur þekktur sem hávaðatónlistarmaðurinn AMFJ.

Hann kemur fram ásamt fleirum á áramótatónleikum FALK-hópsins í Mengi í kvöld, sem ber heitið FALKrósir.

FALK (Fuck Art Let‘s Kill) er hópur listamanna sem einbeita sér að áleitinni og tilraunakenndri raf- og hávaðatónlist. Þeir hafa verið duglegir bæði í tónlistarútgáfu og innflutningi á erlendum tónlistarmönnum en þess má geta að tónleikarnir í kvöld verða í hundraðasta skiptið sem AMFJ treður upp.

Ásamt þeim AMFJ og Krakkkbot kemur fram parið MGBG, sem samanstendur af Bjarna Gunnarssyni, raftónlistarmanni og Marie Guilleray, frönsku tónskáldi og „vócal-improvista“. „Hún notar röddina sem hljóðfæri í raun og veru, á hvað meiri hátt heldur en söngrödd,“ segir Aðalsteinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.