Menning

Flytja sálumessu Verdis

Ásrún Davíðsdóttir segir Sálumessu Verdis ekki flutta oft, enda er mikið fyrirtæki að setja hana upp og verkið gerir miklar kröfur til flytjenda.
Ásrún Davíðsdóttir segir Sálumessu Verdis ekki flutta oft, enda er mikið fyrirtæki að setja hana upp og verkið gerir miklar kröfur til flytjenda.
Óperukórinn í Reykjavík flytur Sálumessu Verdis ásamt sinfóníuhljómsveit og einsöngvurum í Langholtskirkju á sunnudag. Tilefnið er 200 ára afmæli tónskáldsins.

Fjórir einsöngvarar koma fram með kórnum, þau Þóra Einarsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Gissur Páll Gissurðarson og Viðar Gunnarsson en stjórnandi er Garðar Cortes.

Þetta er að minnsta kosti í þriðja sinn sem Óperukórinn flytur Sálumessuna, sem þó fær ekki að hljóma oft. „Þetta verk gerir mjög miklar kröfur til allra flytjenda, þarf stóra hljómsveit, reynda einsöngvara og stóran og kröftugan kór eða kóra, því hluta er messan flutt af tveimur kórum,“ segir Ásrún Davíðsdóttir hjá Óperukórnum.

Tónleikarnir á sunnudag hefjast klukkan 17.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.