Skoraði á fyrstu mínútu á móti bæði Real og Barca | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2015 13:00 Fernando Torres fagnar hér í gær. Vísir/Getty
Fernando Torres og félagar hans í Atlético Madrid duttu í gær út út spænska bikarnum eftir 3-2 tap á móti Barcelona en Barcelona fór áfram samanlagt 4-2. Fernando Torres skoraði í leiknum í gær og hann náði einnig að skora á móti Real Madrid þegar Atlético-liðið sló út nágranna sína í síðustu umferð spænska bikarsins en Torres skoraði þá tvö mörk í 2-2 jafntefli sem dugði liðinu. Það sem er merkilegt fyrir þessi mörk Fernando Torres á móti stórliðunum Real Madrid og Barcelona að hann skoraði á fyrstu mínútu í báðum þessum leikjum. Það liðu líka aðeins þrettán dagar á milli þessara leikja. Á móti Real Madrid skoraði Fernando Torres eftir 46 sekúndur og á móti Barcelona kom hann Atlético Madrid yfir eftir aðeins 38 sekúndur. Þess má geta að Torres skoraði einnig á fyrstu mínútu í seinni hálfleik á móti Real Madrid. Fernando Torres á enn eftir að skora í spænsku deildinni fyrir Atlético Madrid en hann er í láni hjá uppeldisfélagi sínu frá ítalska liðinu AC Milan. Hér fyrir neðan má sjá bæði mörkin sem Fernando Torres hefur skorað í upphafi þessara þriggja hálfleikja í efra myndbandinu sem og helstu atvik úr leiknum í gær í neðra myndbandinu.Mörk Fernando Torres. Mörkin úr bikarleik Barcelona og Atlético Madrid
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira