Dregið um daga í Elliðaánum næsta fimmtudag 27. janúar 2015 09:52
Næstkomandi fimmtudag, 29 janúar, verður dregið um veiðileyfi í Elliðaánum fyrir sumarið 2015. Eins og í fyrra þá fer útdrátturinn fram á bökkum Elliðaánna í húsnæði SVFR að Rafstöðvarvegi 14 og hefst stundvíslega klukkan 20:00. Áhugasömum er boðið að koma og fylgjast með en einnig verður fjallað ítarlega um útdráttinn á vef SVFR og á Facebook síðu félagsins. Eins og endranær er mikill áhugi meðal félagsmanna SVFR að veiða í Elliðaánum enda hefur veiðin undanfarin ár verið góð. Segja má að í Elliðaánum séu félagsmenn á heimavelli enda var félagið stofnað árið 1939 utan um leigu ánna og þar hafa fjölmargir veiðimenn tekið sín fyrstu skref í laxveiðinni. Úthlutun á öðrum veiðisvæðum SVFR í fullum gangi og hefur stjórn félagsins staðið í ströngu við að fara yfir umsóknir og reyna að koma öllum veiðimönnum fyrir á þeim tímum og svæðum sem þeir sækja um. Eftir að útdrætti á Elliðaánum líkur mun Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum mæta á svæðið og vera með skemmtilegt erindi þar sem hann mun fara aðeins yfir þær rannsóknir sem hann hefur stundað í Elliðaánum undanfarin ár, horfur í Elliðaánum fyrir komandi sumar og við hverju veiðimenn mega búsast við bakkann á komandi sumari. Eins og við var að búast var töluverð umframeftirspurn eftir veiðileyfum í Elliðanum næsta sumar en umsóknir voru tæplega 900. Vegna þessa er brugðið á það ráð að láta tölvu sjá um útdrátt leyfa líkt og hefur gefist vel við útdrátt hreindýraveiðileyfa. Félagsmenn SVFR sóttu í úthlutun um tiltekna viku sem þeir helst vilja veiða í og á fimmtudaginn kemur í ljós hverjir detta í lukkupottinn. Umsóknir þeirra sem ekki fá úthlutað leyfum fara í pott og verður dregið úr honum um lausa daga sem eftir standa. Fari svo að einhverir dagar gangi ekki út verða þeir boðnir til sölu í vefsölu félagsins. Á myndinni hér að ofan má sjá hvaða vikur félagsmenn SVFR sóttu helst um, fyrir og eftir hádegi og stangarframboð. Flestar umsóknir eru fyrir hádegi í vikunni 12-18. júlí og kemur ekki á óvart enda er laxinn þá genginn af krafti í ána og búinn að dreifa sér nokkuð.
Stangveiði Mest lesið Sjáðu laxana í teljaranum í Búðarfossi Veiði 80 sentimetra langur sjóbirtingur í Varmá Veiði Fékk 15 punda urriða í Varmá Veiði Varmá: 8 glæsifiskar á 5 klukkutímum Veiði Norðurá aflahæst það sem af er sumri Veiði Frestur til að sækja um hreindýr að renna út Veiði Átta laxar á land í Kjósinni á fyrstu vakt! Veiði 10 laxar í Grímsá fyrsta daginn Veiði Villtur lax á tuttugu þúsund krónur kílóið Veiði Ekki fyrir viðkvæma: Kind skelfilega illa leikin eftir dýrbít í Lundarreykjadal Veiði