Algengustu kertin eru gerð úr parafín vaxi en þau gefa frá sér mengandi efni þegar þau brenna og þessi efni geta verið skaðleg heilsunni.
Samkvæmt Umhverfisstofnun þá ber að vanda valið á kertum:
Flest kerti eru framleidd úr hráolíuafurðum (yfirleitt parafíni) sem mynda koltvíoxíð þegar þau brenna. Því hafa slík kerti áhrif á loftlagsbreytingar, rétt eins og olía og gas. Auk þess eru umhverfisáhrif hráefnavinnslunnar umtalsverð.
Kerti úr náttúrulegum afurðum eru betri fyrir umhverfið. Meðal þeirra náttúrulegu efna sem notuð eru í kerti eru sojavax, býflugnavax, tólg og stearín sem er unnið úr dýrafitu. Nokkrir íslenskir aðilar framleiða kerti úr endurunnum kertaafgöngum og er það án efa betra fyrir umhverfið. Ilmefni eru alltaf varhugaverð í neytendavörum, líka í kertum þar sem þau geta valdið ofnæmi.
Auðveld leið til að velja umhverfisvænt er að velja Svansmerkt. Svanurinn hefur þróað viðmið fyrir kerti en Svansmerkt kerti þurfa að vera gerð úr meira en 90% endurnýjanlegu hráefni. Auk þess eru gerðar kröfur til hámarks leyfilegrar sótmengunar frá kertunum og ilmefni ekki leyfð. Umbúðir þurfa einnig að uppfylla umhverfiskröfur og mega Svansmerkt teljós til að mynda ekki vera í álbakka.

Það er því vissara að vanda valið þegar kemur að kertum og þá er betra að vera með færri en fleiri kerti og velja kerti sem eru úr náttúrulegum efnum. Þó nokkrir íslenskir framleiðendur gera slík kerti og því er hægt að velja íslenskt en um leið vernda umhverfið og heimilið.