Valskonur geta unnið þrítugasta leikinn í röð í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2015 17:00 Elín Metta Jensen í leik á móti Fylki síðasta sumar. Vísir/Daníel
Undanúrslitaleikir Reykjavíkurmóts kvenna í fótbolta fara báðir fram í Egilshöllinni í kvöld og þar geta Reykjavíkurmeistarar síðustu sjö ára unnið tímamótasigur. Fylkir og KR mætast í fyrri leiknum klukkan 18.45 og klukkan 20.45 mætast síðan Valur og Þróttur. Liðin sem vinna leikina mætast í úrslitaleiknum á sama stað á mánudaginn kemur. Valskonur hafa unnið Reykjavíkurmeistaratitil kvenna í sjö ár í röð eða frá og með árinu 2008. Það er ekki nóg með að Valsliðið hafi unnið titilinn í sjö síðustu skipti heldur hefur Hlíðarendaliðið einnig unnið alla leiki sína frá 2009. Valskonur eru nú komnar með 29 sigra í röð í Reykjavíkurmótinu eftir þrjá sigra í þremur leikjum í riðlakeppninni. Síðast unnu þær ekki leik í Reykjavíkurmótinu 5. febrúar 2009 þegar liðið varð að sætta sig við 1-1 jafntefli við Fylki. Valsliðið hefur ennfremur ekki tapað í síðustu 38 leikjum sínum í Reykjavíkurmótinu eða síðan að þær töpuðu 4-3 á móti KR 23. febrúar 2007. Elín Metta Jensen hefur skorað 4 af 8 mörkum Valsliðsins í Reykjavíkurmótinu í ár og er langmarkahæsti leikmaður liðsins í sigurgöngunni. Elín Metta hefur spilað 19 af þessum 29 leikjum og skorað í þeim 37 mörk.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn FH - Stjarnan | Hefja tímann undir stjórn Arons Pálmarssonar Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira