Falur sá eini með fleiri fimm-þrista leiki en Brynjar í lokaúrslitum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2015 16:45 Þessi steinlá hjá Brynjari Þór Björnssyni. Vísir/Valli
Brynjar Þór Björnsson átti stórleik með KR í gærkvöldi þegar liðið vann tuttugu stiga sigur í fyrsta leikinn á móti Tindastól í úrslitaeinvígi Dominos-deildar karla í körfubolta. Brynjar skoraði 22 stig í leiknum þar af 19 þeirra í fyrri hálfleiknum. Öll stigin hans komu á fyrstu 22 mínútum leiksins eða á meðan KR náði upp 28 stiga forskoti. Brynjar skoraði fimm þriggja stiga körfur í leiknum en hann hitti úr fimm af fyrstu sex þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Þetta var í þriðja sinn sem Brynjar skorar fimm eða fleiri þriggja stiga körfur í leik í lokaúrslitum og hann komst þar með í mikinn úrvalshóp. Þrír aðrir leikmenn hafa náð þessu eða þeir Falur Harðarson, Teitur Örlygsson og Guðjón Skúlason. Falur Harðarson er þó í nokkrum sérflokki en hann á átta leiki í úrslitaeinvíginu þar sem hann skoraði fimm þrista eða fleiri. Þessir leikir hans komu í lokaúrslitunum 1991 (1), lokaúrslitunum 1996 (1), lokaúrslitunum 1997 (3) og lokaúrslitunum 1999 (3). Brynjar náði því tvisvar að skora fimm þrista í úrslitaeinvíginu á móti Stjörnunni vorið 2011. Hann skoraði sex þrista í leik eitt og fimm þrista í leik tvö.Flestir leikir í lokaúrslitum með fimm þriggja stiga körfur eða fleiri: 8 - Falur Harðarson, Keflavík (1991, 1996, 1997 og 1999) 3 - Teitur Örlygsson, Njarðvík (1991, 1995 og 2001) 3 - Guðjón Skúlason, Keflavík (1990, 1992 og 1997)3 - Brynjar Þór Björnsson, KR (2011 og 2015) 2 - Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík (2005) 2 - Brenton Birmingham, Njarðvík (2002 og 2006) 2 - Samuel Zeglinski, Grindavík (2013)
Dominos-deild karla Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR - Valur | Sjóðheitir gestir í Breiðholti Tindastóll - KR | Sá fyrsti eftir metaleikinn mikla Þór Þ. - Grindavík | Ólíkt hafast þau að Keflavík - Njarðvík | Montrétturinn í húfi fyrir jólin Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Sjá meira