Sársauki við samfarir sigga dögg skrifar 6. maí 2015 11:00 Vísir/Getty
Sársauki við kynferðislega örvun, sérstaklega í samförum lims í leggöng, getur hamlað kynferðislegum unaði en ræturnar geta bæði verið líkamlegar og andlegar.Vaginismus er þegar krampi eða þrenging verður við leggangaopið (grindarbotnsvöðvinn) er fólk reynir að stunda samfarir. Þetta gerist oft ósjálfrátt og getur gerst bara með ákveðnum aðila, stundum óháð aðilanum eða alltaf þegar samfarir eru reyndar. Hjá öðrum getur þetta gerst við alla innsetingu í leggöng, einnig tíðartappa eða álfabikar. Þær sem glíma við þetta þjást gjarnan í hljóði því enn er þetta málefni tabú. Það er ögn á huldu hversu margar þjást af þessu en þetta er ekki óalgengt. Sársauki og sviði getur svo fylgt samförunum ef yfir höfuð er hægt að koma limnum inn.Algeng meðferð er að nota misstóra stauta til að kenna grindarbotninum að slaka á við innsetningu. Ef þú glímir við þetta þá er vissara að leita til kvensjúkdómalæknis því þetta er best meðhöndlað í samstarfi við fagaðila sem getur leiðbeint þér vel og örugglega. Þá er mikilvægt að æfa sig fyrst með fingri í sjálfsfróun áður en innsetning lims er reynd til að kanna hvort og hvernig þér gengur að fá eitthvað inn í leggöngin. Ef hvorki sjálfsfróun né notkun tíðartappa gengur þá gæti verið gott að leita til læknis áður en samfarir við lim er reynt. Þó má ekki gleyma að orsökin getur einnig verið andleg svo gjarnan vinna kynfræðingar og læknar saman við að meðhöndla þetta því stautar einir og sér gera ansi takmarkað ef ekki er unnið með andlega þáttinn.
Heilsa Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun