Íslensku strákarnir tryggðu sér silfrið með öðrum stórsigrinum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júní 2015 13:12 Jón Axel Guðmundsson varð stigahæsti leikmaður Norðurlandamótsins í ár. Vísir/Stefán
Íslenska 20 ára landsliðið varð í öðru sæti á Norðurlandamótinu sem fór fram í Finnlandi og lauk í dag. Íslenska liðið tryggði sér silfrið með 29 stiga stórsigri á Finnum. Íslenska liðið vann Finna 100-71 eftir að hafa tekið öll völd í öðrum leikhluta sem íslensku strákarnir unnu 30-15. Íslenska liðið var með mikla yfirburði eftir fyrsta leikhlutann en staðan eftir hann var 24-24. Fyrirliðinn Maciej Baginski, var stigahæstur með 21 stig en hann hitti meðal annars úr fjórum af sjö þriggja stiga skotum sínum. Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson skoraði 19 stig fyrir íslenska liðið í leiknum og varð um leið stigahæsti leikmaður mótsins en hann hafði betur í hörku keppni við landa sinn Dag Kár Jónsson. Dagur skoraði 14 stig í dag en þeir voru jafnir fyrir leikinn. Það er ekki á hverjum degi sem Ísland vinnur Finna með meira en tuttugu stiga mun í körfubolta og hvað þá á þeirra eigin heimavelli. Íslenska liðið tapaði í spennuleik á móti Svíum í fyrsta leik en fylgdi því síðan eftir með að vinna 19 stiga sigur á Dönum í gær og svo 29 stiga sigur á Finnum í dag. Svíar tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn með sex stiga sigri á Dönum í dag en þeim leik lauk fyrir leik íslenska liðsins og því var ljóst að Norðurlandameistaratitilinn var ekki á leiðinni til Íslands. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, er þjálfari íslenska liðsins og aðstoðarmaður hans er Erik Olson, þjálfari FSU sem komst upp í Dominos-deildina á þessu tímabili.Silfurlið Íslands á NM 2015: Dagur Kár Jónsson, Stjörnunni Brynjar Friðriksson, Stjörnunni Jón Axel Guðmundsson, Grindavík Oddur Rúnar Kristjánsson, Grindavík Pétur Rúnar Birgisson, Tindastól Maciej Baginski, Njarðvík Hjálmar Stefánsson, Haukum Eysteinn Ævarsson, Keflavík Kristján Leifur Sverrisson, Haukum Maciej Klimazewski, FSu Tómas Hilmarsson, Stjörnunni Viðar Ágústsson, Tindastól
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira