Aron: Algjör hugarfarsbreyting hjá liðinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. júní 2015 16:45 Aron Kristjánsson vill vinna leikinn. vísir/eva björk
Strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu mæta Svartfellingum í lokaleik liðsins í undankeppni EM 2016 í Laugardalshöll á morgun. Farið hefur verið fram og til baka með hvort íslenska liðið sé búið að tryggja sér þátttöku eða ekki og hvað þarf að gerast í öðrum leikjum þannig leikurinn gegn Svartfellingum skipti ekki máli.Sjá einnig:Óli Stef: Strákarnir vilja sópa upp eftir sig „Það væri einfaldast að vinna á sunnudaginn og taka fyrsta sætið í riðlinum. Það er aðalatriðið,“ segir Aron Kristjánsson í samtali við Vísi. „Það eru líka ágætis skilaboð að ná fyrsta sætinu. Það segir að við erum sterkir og skapar okkur betri stöðu fyrir EM í Póllandi.“ Stefnan er afskaplega einföld í Laugardalshöll á morgun segir Aron. „Við eigum ekkert að hugsa um hvað getur orðið. Við erum að spila á heimavelli og eigum að vinna þennan leik. Við erum að spila vel og leggjum því upp með að sigra.“ „Nú þarf bara að einbeita sér einu sinni í viðbót fyrir sumarfrí og gera það almennilega á sunnudaginn.“ Síðustu þrír leikir landsliðsins hafa verið virkilega flottir og er allt annað að sjá til liðsins en á HM í Katar. „Númer 1, 2 og 3 er það hugarfarið. Síðasta sumar var þreyta í liðinu gegn Bosníu. Þessi sumarverkefni eru hættuleg og ég tel okkur hafa lært af því verkefni,“ segir Aron. „Eftir það voru neikvæðir straumar sem mynduðust í kringum Katar og umræðuna í kringum þátttökuna í því móti. Þar áttum við góða leiki en líka nokkra mjög slaka. En í síðasta verkefni gegn Serbíu var algjör hugarfarsbreyting,“ segir Aron Kristjánsson.
Íslenski handboltinn Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Sjá meira