Handbolti

Fyrr­verandi Stjörnu­maður lést fer­tugur að aldri

Sindri Sverrisson skrifar
Rati Mskhvilidze var aðeins fertugur þegar hann lést.
Rati Mskhvilidze var aðeins fertugur þegar hann lést.

Handboltamaðurinn Rati Mskhvilidze, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar og georgíska landsliðsins, er látinn aðeins fertugur að aldri.

Samkvæmt georgískum fjölmiðlum fékk Mskhvilidze hjartaáfall í verslunarmiðstöð í Tíblisi, höfuðborg Georgíu. Hann komst inn í apótek til að leita hjálpar en lauk þar ævinni þrátt fyrir endurlífgunartilraunir.

Mskhvilidze var um það bil tveggja metra hár og lék sem skytta með Stjörnunni tímabilið 2007-08. Hann lék fyrir fleiri félög bæði heima í Georgíu og utanlands sem og með landsliði Georgíu áður en hann sneri sér að þjálfun.

Georgíska handknattleikssambandið greindi frá andlátinu á samfélagsmiðlum sínum og skrifaði:

„Georgíska handknattleikssambandið tilkynnir með djúpri sorg andlát Rati Mskhvilidze, fyrrverandi leikmanns georgíska landsliðsins, reynds handboltamanns og þjálfara.

Rati Mskhvilidze lagði mikið af mörkum til þróunar georgísks handbolta. Á íþróttaferli sínum lék hann með ýmsum félögum, bæði í Georgíu og annars staðar í Evrópu, og síðar sneri hann sér að þjálfun og miðlaði reynslu sinni og þekkingu til yngri kynslóðarinnar.

Andlát hans er mikill missir fyrir georgískan handbolta og íþróttasamfélagið.

Georgíska handknattleikssambandið vottar fjölskyldu Rati Mskhvilidze, ástvinum hans og vinum innilega samúð sína.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×