Ný stikla: Óskarsverðlaunafnykur af Joy Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. júlí 2015 17:14 Fyrst bogi og örvar, nú haglabyssa. Jennifer Lawrence er vön að handleika skotvopn.
Jennifer Lawrence er vígaleg í fyrstu stiklunni fyrir kvikmyndina Joy sem væntanleg er í kvikmyndahús í vetur. Í kvikmyndinni leiða þau Lawrence, Robert De Niro og Bradley Cooper saman hesta sína á ný eftir stórkostlegan samleik í kvikmyndinni Silver Linings Playbook sem vakti mikla lukku árið 2012 Kvikmyndinni er leikstýrt af David O. Russell sem gerði garðinn frægan með kvikmyndum á borð við I Heart Huckabees, The Fighter, American Hustle og ekki síst hina margverðlaunuðu Silver Linings Playbook og ljóst er að Russell sækir ekki vatnið yfir lækinn í leikaravali sínu. Í kvikmyndinni Joy fylgjast áhorfendur með sögu fjögurra kynslóða og baráttu einstæðu móðurinnar Joy Mangeno sem vinnur sig upp úr sárri fátækt. Þó svo að myndin hafi ekki enn verið frumsýnd eru gagnrýnendur vestanhafs sannfærðir um að hún muni sópa að sér verðlaunum á kvikmyndahátíðum næsta árs. Fyrstu stikluna úr myndinni má sjá hér að neðan.
Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Arnar og Sara gáfu syninum nafn Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira