Dortmund skoraði sjö mörk - Southampton úr leik í Evrópudeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2015 20:55 Henrikh Mkhitaryan og Marco Reus fagna. Vísir/Getty
Borussia Dortmund fór illa með norska félagið Odd í Evrópudeildinni í kvöld en enska úrvalsdeildarliðið Southampton er hinsvegar úr leik.Borussia Dortmund vann 7-2 heimasigur á Odd og fór þar með áfram 11-5 samanlagt en Dortmund vann fyrri leikinn í Noregi 4-3. Marco Reus skoraði þrennu í kvöld og Shinji Kagawa var með tvö mörk. Ole Jørgen Halvorsen kom Odd í 1-0 á 19.mínútu leiksins en Henrikh Mkhitaryan jafnaði metin á 25. mínútu og tveimur mínútum síðar var Marco Reus búinn að koma þýska liðinu yfir. Marco Reus og Shinji Kagawa komu Dortmund síðan í 4-1 fyrir hálfleik og tvö mörk til viðbótar frá Ilkay Gündogan og Reus í byrjun seinni hálfleiks þýddu að staðan var orðin 6-1. Odd minnkaði muninn í 6-2 en Shinji Kagawa átti lokaorðið með sínu öðru marki í leiknum. Midtjylland vann 1-0 sigur á Southampton í Danmörku og danska liðið fór þar með áfram 2-1 samanlagt. Morten Rasmussen skoraði eina mark leiksins á 28. mínútu leiksins en fyrri leikurinn endaði 1-1 á heimavelli Southampton.Norska félagið Molde mátti við því að tapa 3-1 á móti belgíska liðinu Standard Liege í kvöld en Norðmennirnir komust áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Etzaz Hussain jafnaði metin í 1-1 skömmu fyrir hálfleik í leiknum í kvöld og það mark skilaði Molda á endanum áfram í riðlakeppnina þrátt fyrir að Belgarnir hafi skorað tvö mörk í seinni hálfleiknum.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Púlsinn tekinn í KR-heimilinu City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Sjá meira