Menning

Læknaneminn Ragnar frumsýnir nýtt myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragnar er 26 ára tónlistarmaður frá Seltjarnarnesi.
Ragnar er 26 ára tónlistarmaður frá Seltjarnarnesi. mynd/saga sig
Ragnar Árni Ágústsson hefur lengi starfað við tónlist á hliðarlínunni en hann frumsýnir nýtt myndband á Vísi í dag en lagið ber nafnið Leiðin.

Ragnar er 26 ára tónlistarmaður frá Seltjarnarnesi en hann er einnig höfundur texta lagsins.

Friðfinnur Sigurðsson útfærði lagið, Frosti Jón Runólfsson gerði myndband og Carmen Jóhannsdóttir stýrði framleiðslu.

Ragnar Árni er uppalinn á Seltjarnarnesi. Hann hóf tónlistarnám í Tónlistarskóla Seltjarnarness 6 ára og valdi sér saxafón sem aðalhljóðfæri 8 ára. Þegar námi í Tónlistarskóla Seltjarnarness lauk lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist hann þaðan árið 2011. Einnig stundaði hann nám við Berklee Collage of Music í Boston.

Sjá einnig:Frumsýnir myndbandið þar sem horft er yfir tökustaðinn

Hann hefur leikið á saxófón með ýmsum tónlistarmönnum t.d. með SJS Big Band Bubba, og Hjálmum.

Ragnar hefur einnig fengist við að semja kvikmyndatónlist og síðast fyrir myndina Fort Buchanan, sem sýnd hefur verið á kvikmyndahátíðum víða um heim og á MOMA í New York. Ragnar Árni stundar  nám í læknisfræði og vinnur að tónlist sinni í frístundum.

Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.