Menning

Ég fann strax Brassann í mér í bossanóva

Magnús Guðmundsson skrifar
Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino verða í dillandi stuði í Mengi í kvöld.
Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino verða í dillandi stuði í Mengi í kvöld. Visir/GVA
Þetta gerist nú allt út af því að við flytjum til Lundúna 1999 þar sem konan mín fór í nám og ég ákvað að fara í svona óformlegt nám með því að leita uppi Brasilíumann til þess að læra og spila þessa músík. Þannig að ég fór að grennslast fyrir um hver spilaði þessa tónlist, sérstaklega þessar bossanóvur, af því að ég hafði verið að bralla svona eitthvað við þetta hérna heima.

Þessi tónlist hefur alltaf togað í mig. Það var náttúrulega þessi fræga plata Getz/Gilberto sem gerði allt gjörsamlega vitlaust á sínum tíma. En það bara er eitthvað í þessari brasilísku tónlist sem maður finnur ekki annars staðar, einhver léttleiki sem er samt svo fínn og innilegur. Það er svo auðvelt að misskilja þetta og líta á þetta sem eitthvert lyftuelement en það er eitthvað alveg rosalega djúpt þarna oní ef maður fer að kafa í þetta. Það er þetta sambland sem ég hef svo mikinn áhuga á; eitthvað sem er svo djúpt en svífur jafnframt svo létt og leikandi.“

Í London hafði Óskar uppi á Ife og fleiri tónlistarmönnum og var boðið að koma á óformlega tónleika sem þeir voru með á brasilískum veitingastað og fékk að sitja inn eins og það er kallað, var sem sagt boðið að koma upp á svið og djamma. Það gekk svo ótrúlega að þetta bara rann saman strax.“

Tónlistarmönnunum ber klárlega saman um þetta því Ife segir að það hafi verið eins og þeir hefðu spilað saman í mörg ár. „Hann vissi allt um grúvið og sálina í brasilískri tónlist en þó þannig að hann bætti einhverju mjög sérstöku við hana. Tveimur árum síðar var ég á Íslandi að spila með Óskari og fleiri íslenskum tónlistarmönnum. Tilfinningin varð ennþá sterkari. Ég hafði fundið nýja leið til að spila tónlistina sem ég elska.“

Óskar bendir á að ástæðan fyrir því að þetta passaði svona vel saman hjá þeim hafi einfaldlega verið að þetta hafi verið það sem hann var að leita að. „Brassinn í mér kom ekki fram á fótboltavellinum en hann brýst út þarna. En í dag er auðvitað það allra flottasta að vera Íslendingur á fótboltavellinum,“ segir Óskar og hlær og bætir við að á tónleikunum í Mengi í kvöld ætli þeir að spila sambland af þessum klassísku brasilísku lögum en samt ekki þau dæmigerðu sem fólk heyrir oftast. „Svo spilum við líklega eitt eða tvö lög eftir Ife en hann er á landinu til þess að undirbúa upptöku á eigin lögum og ég er að stjórna upptökum og gera þetta með honum. Þetta verður bara gaman.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.