Heildarveiðin í Laxá í Dölum var ekki nema 216 laxar allt tímabilið í fyrra en það er allt önnur saga við ánna í sumar.
Áin var heldur sein af stað eins og margar árnar á vesturlandi, sér í lagi þær sem eru þekktar sem síðsumarsár, en eftir af veiðin fór almennilega af stað í ágúst hefur mokveiðst í ánni. Í gær var áin komin í 1.087 laxa og ekkert lát er á veiðinni í henni enda segja veiðimenn sem eru við bakka hennar að hún sé hreinlega blá af laxi. Veitt er á 4-6 stangir í ánni.
Þetta er mikill viðsnúningur frá árinu í fyrra sem var það lélegasta í Laxá en engin tilhlýðileg skýring hefur verið lögð fram sem getur að einhverju leiti útskýrt þessa dýfu nema einhver óþekkt skilyrði í sjónum. Veitt er til 28. september í dölunum svo það eru uppi getgátur um að áin fari jafnvel í 1.500 til 1.600 laxa á þessu tímabili sem myndi gera það að sjöunda besta veiðisumri í henni frá upphafi. Það eru margir sem vildu gjarnan bleyta færi í Laxá síðsumars en á heimasíðu leigutakans Hreggnasa er tekið fram að uppselt er í hana á þessu ári og nú þegar mikið bókað fyrir næsta ár.

