Guðjón yfirgefur Breiðablik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. október 2015 16:28 Guðjón skoraði 17 mörk í 60 deildarleikjum með Breiðabliki. vísir/andri marinó
Guðjón Pétur Lýðsson er á förum frá Breiðabliki en hann og knattspyrnudeild félagsins hafa ákveðið að nú skilji leiðir og leikmannasamningur Guðjóns verður ekki framlengdur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Guðjóni og Breiðabliki. Eins og fram kom í samtali við Vísi fyrr í vikunni var Guðjón ósáttur við hlutskipti sitt hjá Blikum í sumar. Hann spilaði þrátt fyrir það 20 af 22 deildarleikjum Breiðabliks, skoraði fjögur mörk og lagði upp sex til viðbótar. Breiðablik endaði í 2. sæti Pepsi-deildarinnar. Guðjón lék í þrjú ár með Breiðabliki, alls 60 deildarleiki og skoraði í þeim 17 mörk. Auk Breiðabliks hefur Guðjón leikið með Haukum, Stjörnunni, Álftanesi og Val hér á landi. Þá lék hann um tíma með Helsingborg í Svíþjóð. Í samtalinu við Vísi sagðist Guðjón stefna að því að leika erlendis á næsta tímabili: „Það hafa alltaf verið lið úti sem hafa sýnt manni áhuga en það er best að segja sem minnst um það á þessu stigi málsins. Þetta kemur bara í ljós. En ef ekkert verður af því þá heyrir maður í liðunum hér heima. Það er alveg ljóst að ef ég spila á Íslandi þá verður það með toppliði,“ sagði Guðjón. Í fréttatilkynningunni þakkar hann knattspyrnudeild Breiðabliks, starfsfólki, sjálfboðaliðum, stuðningsmönnum, þjálfurum og síðast en ekki síst leikmönnum fyrir frábæra tíma hjá félaginu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Lærisveinar Arons úr leik eftir tap í framlengdum leik Handbolti Fleiri fréttir Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Sjá meira