Met var sett í aðsókn á viðburði RIFF Stefán Árni Pálsson skrifar 8. október 2015 17:30 Meðfylgjandi myndir eru frá lokakvöldinu á RIFF. vísir
Um liðna helgi lauk Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík en lokamynd hátíðarinnar að þessu sinni var frumsýning á fyrsta þætti sjónvarpsþáttarraðarinnar Ófærð sem framleidd er af RVK Studios, framleiðslufyrirtæki Baltasar Kormáks. Að lokinni frumsýningu þáttarins í Sambíóunum Egilshöll var haldið í Iðnó þar sem lokahóf hátíðarinnar fór fram. Þar var það íranska myndin Miðvikudagur 9. maí eftir Vahid Jalilvand, sem var valin Uppgötvun ársins og hreppti Gullna lundann. Hin virtu Fipresci verðlaun frá samnefndum alþjóðasamtökum kvikmyndagagnrýnenda, hlaut myndin Krisha frá Bandaríkjunum eftir Trey Edward Shults. Myndin How to Change the World eftir Jerry Rothwell fékk þá Umhverfisverðlaun RIFF. Þá voru veitt verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmynd í samvinnu við RÚV. Tvær myndir skiptu með sér verðlaununum að þessu sinni og er það í fyrsta sinn. Það voru myndirnar Heimildaminnd eftir Jón Ásgeir Karlsson og Regnbogapartý eftir Evu Sigurðardóttur sem hlutu verðlaunin. Að lokinni athöfn var svo slegið upp heljarinnar veislu í salarkynnum Iðnó með gestum RIFF og aðstandendum Ófærðar. RIFF-hátíðin fór afar vel fram að þessu sinni en met var sett í aðsókn á viðburði hátíðarinnar en hátt í 30 þúsund gestir sáu kvikmyndasýningar og viðburði á dagskrá RIFF í ár. auk þess sem á annað hundrað erlendir gestir sóttu hátíðina heim.vísir
RIFF Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira