Menning

Handfylli ljóða úr hverri bók

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég fór að safna saman því sem ég hafði birt í tímritum og bókum og þegar ég fletti þeirri heildarmöppu sá ég að orðið eilífð kom þar nokkrum sinnum fyrir,“ segir Kristian.
"Ég fór að safna saman því sem ég hafði birt í tímritum og bókum og þegar ég fletti þeirri heildarmöppu sá ég að orðið eilífð kom þar nokkrum sinnum fyrir,“ segir Kristian. Vísir/Pjetur
„Fyrsta bókin mín, Afturgöngur, kom út árið 1995. Eilífðir er sú ellefta í röðinni og í henni er handfylli af ljóðum úr hverri bók sem komið hefur út á ferlinum. Titillinn Eilífðir? Ég sá fyrir mér að orðið mundi líta vel út og konan mín, hún Sigurbjörg Sæmundsdóttir, bjó til kápumyndina sem smellpassar við. Þetta er kápa sem hægt er að hverfa inn í, maður skynjar einhverja eilífðarpælingu í henni.“

Kristian kveðst hafa safnað ljóðum sem birst höfðu hér og þar í sérstaka möppu og beðið fólk sem hann þekkti og treysti að velja þar 100 bestu ljóðin.



„Að stórum hluta var fólk sammála og svo endurskoðaði ég valið og skar ljóðafjöldann niður í 80.“

Það er Félag ljóðaunnenda á Austurlandi sem gefur Eilífðir út, enda hefur Kristian búið á Héraði í tvö ár en er nýfluttur suður. 

Hann segir blómlegt starf í ljóðakreðsunni fyrir austan og uppbyggilegt andrúmsloft.

„Félagið heldur reglulega fundi og talsvert er um viðburði og upplestra þar sem öllum er boðið. Þar mætir fjölbreytilegur hópur á öllum aldri. Mér finnst gagnleg reynsla að lesa upp fyrir fólk með ólíkan bakgrunn og fá athugasemdir og uppbyggilega gagnrýni.  Það var bara gott að komast út í sveit þar sem allir heilsast og bjóða góðan dag, allt er í göngufæri og lífið er afslappað.“

Kvöldstund

einmana ský

sigldi inn


í blóðrauðan

himininn

og kastaði akkerinu

þar sem sólin

hafði stungið sér

á kaf






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.