Menning

Yrsa um fráfall Mankell: Rosalega stór rithöfundur og dáður víða

Atli Ísleifsson skrifar
Yrsa Sigurðardóttir segist sjálf ekki hafa lesið mikið eftir Henning Mankell.
Yrsa Sigurðardóttir segist sjálf ekki hafa lesið mikið eftir Henning Mankell. Vísir/Daníel/AFP
Yrsa Sigurðardóttir segir að sænski rithöfundurinn Henning Mankell hafi verið rosalega stór rithöfundur og dáður víða. Mankell lést í Gautaborg í nótt, 67 ára að aldri, en hann hafði glímt við krabbamein um nokkurt skeið.

„Henning Mankell var sá sem á hvað mestan heiður að því að innleiða skandinavískar glæpasögur á hinn almenna heimsmarkað. Ég held að það sé óumdeilt að hann eigi þar mjög stóran þátt.“

Yrsa segist ekki hafa lesið mikið eftir Mankell sjálf og því hafi hann ekki haft mikil áhrif á hana sem rithöfund. „Ég er í svolítið öðru en hann.“

Hún segist þó einu sinni hafa setið við hliðina á honum á bókahátíð í Frakklandi þar sem þau voru að árita bækur sínar. „Hann var mjög almennilegur. Þetta dró mann þó svolítið niður þar sem röðin hjá honum náði út úr húsi og í kringum húsið. Einu bækurnar sem ég áritaði var hjá fólki sem vorkenndi mér að þurfa að sitja þarna við hliðina á honum.“

Yrsa segir að Mankell hafi látið þjóðmálin sér varða og þannig hafi honum verið umhugað um málefni Palestínu á síðustu árum. „Það er greinilegt að hann var eldheitur í sínum skoðunum og var annt um fólk. Það efast enginn um.“


Tengdar fréttir

Henning Mankell látinn

Mankell er þekktastur fyrir bækur sínar um rannsóknarlögreglumanninn Kurt Wallander.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.