Þór Þorlákshöfn í úrslit Lengjubikarsins í fyrsta sinn Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. október 2015 22:15 Þór Þorlákshöfn leikur til úrslita í Lengjubikarnum á morgun. Vísir/Valli
Þór Þorlákshöfn komst í úrslit Lengjubikarsins í körfuknattleik í kvöld eftir dramatískan 83-82 sigur á Haukum. Leikmenn Hauka fengu tækifæri til þess að stela sigrinum þegar ein sekúnda var eftir á klukkunni en skotið klikkaði. Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitunum fyrr í kvöld með tíu stiga sigri á FSu en báðir leikir kvöldsins fóru fram á Selfossi þar sem úrslitaleikurinn fer fram á morgun. Þór byrjaði leikinn betur og leiddi 26-22 að fyrsta leikhluta loknum. Tókst leikmönnum liðsins að bæta við forskotið í öðrum leikhluta og leiddu leikmenn Þórs í hálfleik 48-42. Gestirnir úr Hafnarfirði voru hinsvegar ekkert á því að gefast upp og unnu sig aftur inn í leikinn í þriðja leikhluta sem þeir unnu 26-22 og var staðan 70-68 að loknum þriðja leikhluta. Haukar náðu forskotinu um miðbik fjórða leikhluta en það virtist vekja leikmenn Þórs aftur til lífsins því þeir tóku aftur við sér og náðu forskotinu strax aftur. Liðin skiptust á körfum á lokamínútunum en Þór var með eins stiga forskot þegar hálf mínúta var eftir. Fengu þeir fjöldan allra tækifæra til að gera út um leikinn, meðal annars eftir tvö sóknarfráköst en þeim tókst ekki að koma boltanum í körfuna og fengu leikmenn Hauka eitt tækifæri til þess að stela sigrinum með aðeins eina sekúndu á klukkunni. Stillt var upp í leikkerfi og fékk Kári Jónsson tækifæri til að stela sigrinum en skot hans geigaði og verður það því Þór Þorlákshöfn sem mætir Stjörnunni á morgun.
Dominos-deild karla Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Sjá meira