Handbolti

Víkingur og Akureyri einu úrvalsdeildarliðin sem spila í 1. umferð bikarsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Daníel Örn Einarsson og félagar í Víkingi mæta ÍH
Daníel Örn Einarsson og félagar í Víkingi mæta ÍH vísir/pjetur
Víkingur og Akureyri eru einu Olís-deildarliðin sem spila í fyrstu umferð Coca Cola-bikars karla í handbolta, en dregið var til fyrstu umferðarinnar í kvöld.

Víkingar, sem eru nýliðar í Olís-deildinni, heimsækja 1. deildar lið ÍH, en Akureyri mætir Gróttu 2 á Seltjarnarnesi.

Öll hin átta liðin úr úrvalsdeildinni sitja hjá en mæta til leiks í 16 liða úrslitum keppninnar.

Drátturinn í fyrstu umferð:

Selfoss - Valur 2

Mílan - Fjölnir 1

Víkingur - ÍH

Haukar 2 - ÍBV 2

Grótta 2 - Akureyri

Þróttur - Stjarnan

ÍR - Fjölnir 2

Þróttur Vogum - KR

Sitja hjá: Haukar, Valur, ÍBV, Afturelding, Grótta, FH, Fram og HK

Leikið verður 25. og 26. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×