Ég trúi á tónlistina og það sem hún gerir fyrir okkur Magnús Guðmundsson skrifar 2. nóvember 2015 10:00 Jóel Pálsson tónlistarmaður. Visir/Vilhelm
Jóel Pálsson segir að þeir Kjartan hafi starfað með Stórsveitinni um árabil sem óbreyttir meðlimir og séu báðir búnir að vera viðloðandi þennan bransa lengi. „En þetta er þó í fyrsta skipti sem Stórsveitin spilar tónlistina mína sem er venjulega skrifuð fyrir smærra band. Upphaflega hugmyndin varð til á afmælishátíð Félags íslenskra tónskálda og textahöfunda en þá spilaði Stórsveitin lag eftir mig sem Kjartan útsetti. Það kom bara skratti vel út og þá kom upp þessi hugmynd að gera heila dagskrá með tónlistinni sem er núna klár og platan komin.“ Jóel segir að upptökur hafi farið fram í Stúdíó Sýrlandi í Vatnagörðum í sumar og að um 20 manns séu í sveitinni að meðtöldum aukamönnum sem tóku þátt í flutningnum. „Þarna er valinn maður í hverju rúmi svo þetta gekk allt glimrandi vel fyrir sig.“ Jóel var þó ekki með Stórsveitina í huga þegar þessi lög voru samin á sínum tíma. „Það eru svona fimmtíu til sextíu lög á plötunum mínum og við fórum að velja úr þeim þau sem hentuðu best og hafa í bland við nýtt efni. Svo eru fáir betur til þess fallnir en Kjartan Valdemarsson til þess að útsetja þetta enda þekkir hann Stórsveitina vel og hefur verið að færa sig þar upp á skaftið sem útsetjari með góðum árangri. Þetta var mjög skemmtilegt ferli og það merkilega er að eftir að maður hefur verið að vasast í þessu þá finnst mér eins og sum lögin hafi alltaf átt að vera svona eins og þau eru í þessum útsetningum þegar maður er farinn að venjast þeim. Það skiptir líka miklu máli að Stórsveitin er búin að vera í stöðugri framför og mikill metnaður í mannskapnum að gera vel. Við spilum tónleika á nokkra vikna fresti og fyrir marga okkar er þetta ákveðið akkeri að hittast þarna reglulega og vinna að afmörkuðum verkefnum í þessum góða félagsskap.“ Jóel segir að titillag plötunnar Innri hafi verið sótt í ákveðnar pælingar um trúarbrögð á sínum tíma og þörf mannsins fyrir þau. „INRI með einu enni er latnesk skammstöfun fyrir Jesús frá Nasaret og þetta er bara smá útúrsnúningur á því. En ég get að minnsta kosti sagt að ég trúi á tónlistina og það sem hún gerir fyrir okkar INNRA taugakerfi. Þannig hefur það í raun verið frá blautu barnsbeini enda er ég kominn úr mjög tónlistarlega sinnaðri fjölskyldu.“
Tónlist Mest lesið Stórum hluta kærunnar vísað frá Lífið Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Lífið Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Gagnrýni Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun „Enginn skömm af því að leita sér hjálpar“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Birnir á lag ársins Lífið „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Lífið Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira