Uppteknar í bandaríska háskólaboltanum og missa af landsleikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2015 09:30 Hildur Björg Kjartansdóttir, Margrét Rósa Hálfdanardóttir og Sara Rún Hinriksdóttir. Vísir/Stefán
Þrír fastamenn í íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta geta ekki tekið þátt í fyrstu leikjum liðsins í undankeppni EM 2017 en framundan eru tveir leikir hjá íslensku stelpunum. Þetta eru þær Hildur Björg Kjartansdóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir sem stunda allar nám í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram á kki.is. Íslenska kvennalandsliðið mætir Ungverjum út í Ungverjalandi laugardaginn 21. nóvember og tekur síðan á móti Slóvakíu í Laugardalshöllinni miðvikudagskvöldið 25. nóvember. Fjarvera þeirra Hildar, Margrétar og Söru er mikill missir fyrir íslenska liðið enda eru þær þrjár af fjórum stigahæstu leikmenn íslenska liðsins á árinu 2015 þegar litið er á meðalskor í leik. Saman hafa þessar þrjár skorað 28,7 stig að meðaltali í landsleikjum sínum á árinu. Margrét Rósa Hálfdanardóttir er á sínu öðru ári með Canisius College og þar er Sara Rún Hinriksdóttir á sínu fyrsta ári. Hildur Björg Kjartansdóttir er á sínu öðru ári í The University of Texas Rio Grande Valley. Allar þrjár munu þær spila leiki með skólum sínum sama kvöld og íslenska kvennalandsliðið er að spila í Ungverjalandi á laugardaginn kemur. Margrét Rósa og Sara Rún spila með Canisius-háskólaliðinu bæði keppniskvöld íslenska landsliðsins í nóvember, fyrst laugardaginn 21. nóvember á móti St. Francis og svo miðvikudagskvöldið 25. nóvember á móti Binghamton. Þetta verða þriðji og fjórði leikur liðsins á tímabilinu og jafnframt tveir fyrstu heimaleikirnir. Hildur Björg spilar á laugardeginum með UTRGV á móti Eastern Michigan University og fer sá leikur fram á útivelli en þriðjudaginn á eftir spilar liðið við University of California Santa Barbara og fer sá leikur fram í Kaliforníu.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira