Arnar og Axel unnu Israel Martin eftir framlengingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2015 19:23 Arnar Guðjónsson og Craig Pedersen sjást hér stýra íslenska landsliðinu. Vísir/Andri Marinó
Arnar Guðjónsson stýrði Svendborg Rabbits til óvænts útisigurs á móti Bakken Bears í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Svendborg Rabbits vann þá 102-98 sigur á Bakken Bears eftir framlengingu en frábær endurkoma strákanna hans Arnars í fjórða leikhluta og góð frammistaða í framlengingunni tryggðu liðinu annan sigurinn undir stjórn Arnars Guðjónssonar. Israel Martin, fyrrum þjálfari Tindastóls, þjálfar lið Bakken Bears, en liðið var búið að vinna sjö af fyrstu átta leikjum sínum þar á meðal útisigur á Kanínunum fyrr í vetur. Arnar tók við liði Svendborg Rabbits af Craig Pedersen um miðjan nóvember en Pedersen ákvað að einbeita sér að þjálfun íslenska landsliðsins. Axel Kárason spilar með Svendborg Rabbits og lék í 19 mínútur í kvöld. Axel skoraði ekki og klikkaði á öllum fjórum skotunum sínum en var með 2 fráköst og 1 stoðsendingu. Bakken Bears liðið byrjaði leikinn miklu betur og var þrettán stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 28-15. Svendborg Rabbits var búið að minnka muninn niður í sjö stig fyrir hálfleik, 47-40, og það var enn sjö stiga munur fyrir lokaleikhlutann, 73-66. Arnar Guðjónsson náði að kveikja í sínum mönnum í hléinu á milli þriðja og fjórða leikhluta. Axel Kárason var inná þegar Svendborg Rabbits skoraði tólf stig í röð og breytti stöðunni úr 66-73 í 78-73. Liðin skiptust á því að taka forystuna í lokaleikhlutanum en Antonio Pernigotti tryggði Svendborg Rabbits að lokum framlengingu með því að setja niður tvö víti sextán sekúndum fyrir leikslok. Hann jafnaði þá leikinn í 93-93. Svendborg Rabbits var sterkari í framlengingunni, vann hana 9-5 og þar með leikinn 102-98. Bandaríkjamaðurinn Brandon Rozzell skoraði 37 stig fyrir Svendborg Rabbits í kvöld en hann var bara með 7 stig í hálfleik.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira