Sonur Zidane rekinn útaf fyrir að skalla mann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2015 12:30 Luca Zidane. Vísir/Getty
Luca Zidane, sonur frönsku knattspyrnugoðsagnarinnar Zinedine Zidane, gerði allt vitlaust á dögunum í leik 17 ára liða Real Madrid og Atletico Madrid. Luca Zidane spilar sem markvörður hjá sautján ára liði Real Madrid og átti ekki góðan dag þegar Real Madrid tapaði 4-2 á móti nágrönnum sínum. Luca Zidane fékk á sig fjögur mörk í leiknum og var allt annað en sannfærandi í markinu. Hann gerði síðan illt verra þegar hann fékk beint rautt spjald fyrir að skalla ein leikmann mótherjanna. Luca Zidane kveikti vel í leikmönnum liðanna með þessari framkomu sinni og úr varð mikil uppákoma þar sem dómari leiksins þurfti að hafa sig allan við til að ná aftur tökum á leiknum. Hann gaf Luca Zidane síðan rauða spjaldið. Það að Luca Zidane hafi fengið rautt spjald fyrir að skalla leikmann minnir menn á lokaleik föður hans Zinedine Zidane. Zinedine Zidane fékk rautt spjald í úrslitaleik HM 2006 fyrir að skalla ítalska varnarmanninn Marco Materazzi. Þetta var síðasti leikur Zidane á ferlinum. Zidane á marga syni í unglingaliðum Real Madrid. Theo og Elyaz spila í akademíunni og Enzo er fyrirliði varaliðsins. Kannski er Luca Zidane bara svarti sauðurinn í hópnum.El derbi más negro de Luca Zidane: 4 goles y expulsión ▶ https://t.co/x76G7oCxgU https://t.co/FZcjT2O419 @diarioas pic.twitter.com/DlY76jeHeU— AStv (@AS_TV) November 29, 2015
Spænski boltinn Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM FIFA: Fær ekki að dæma á HM vegna komubannsins Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Gakpo skoraði tvö mörk í fimmtugasta landsleiknum Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Van Persie rekinn frá uppeldisfélaginu Svona var fundur Íslands fyrir leikinn við heimsmeistarana Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Löggan þorði ekki að þiggja miða HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Sjá meira