Menning

Mozart setti sig í stellingar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 Blásarakvintett Reykjavíkur í Fríkirkjunni.
Blásarakvintett Reykjavíkur í Fríkirkjunni. Vísir/Valli
„Kvöldlokkur eða blásaraserenöður eru hljómfögur klassísk tónlist sem á vel við á aðventunni þegar við sækjumst eftir fegurð og friðsæld meðan á jólaundirbúningnum stendur,“ segir Einar Jóhannesson klarinettuleikari.

Hann er einn þeirra sem skipa Blásarakvintett Reykjavíkur sem heldur tónleikana Kvöldlokkur í Fríkirkjunni í kvöld, ásamt félögum.

„Að þessu sinni er komið að djásni allra blásaraserenaða – þeirri stóru fyrir 13 blásara og kontrabassa eftir meistara Mozart,“ segir Einar. „Þessi serenaða er oft kölluð Gran Part­itam og þó hún sé hrein skemmtitónlist þá setur Mozart sig þarna í sérstakar stellingar og leggur meira í verkið en búast hefði mátt við.  Árangurinn er klukkustundarlangur sæluhrollur!“

Einar bætir þeim fróðleik við að tónar úr seren­öðunni komi mikið við sögu í kvikmyndinni Amadeus sem margir muna eftir.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Miðaverð er 2.000 krónur og 1.000 krónur fyrir eldri borgara og nemendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.