Lokað á Pizza 67 eftir að rafmagnið var tekið af ingvar haraldsson skrifar 16. desember 2015 07:00 Pizza 67 við Grensásveg var lokaður og mannlaus þegar ljósmyndara bar að garði í hádeginu í gær. Öll ljós voru slökkt enda búið að taka rafmagnið af. fréttablaðið/anton vísir/anton
Lokað var fyrir rafmagn á veitingastöðum Pizza 67 við Grensásveg og Langarima í Grafarvogi í gær vegna skuldar. Pitsastaðirnir voru því lokaðir í gærmorgun en opnuðu á ný í gærkvöldi eftir að rafmagnsreikningurinn var greiddur. Staðurinn í Grafarvogi var opnaður fyrir ári en á Grensásvegi síðasta sumar. Vísir greindi frá því í síðustu viku að P67 ehf., sem rekur veitingastaðina tvo undir merkjum Pizza 67, skuldaði starfsmönnum laun auk þess að hafa hvorki greitt lífeyrissjóðum né verkalýðsfélögum lögbundnar greiðslur. Anton Traustason, eigandi Pizza 67, sagði þá að allir starfsmenn fengju greitt en það tæki tíma.Sjá einnig: Endurkoma Pizza 67 ekki gengið áfallalaust Anton bar fyrir sig að opnun staðarins við Grensásveg hefði verið dýrari en áætlanir hefðu gert ráð fyrir. Of margir starfsmenn hafi verið þjálfaðir sem hafi svo lítið unnið. Þá hefðu afturvirkar kjarasamningshækkanir Eflingar komið illa við reksturinn. Hann var þess fullviss að gengi staðarins myndi snúast við enda væri desember stærsti mánuður ársins í skyndibitageiranum. Anton vildi lítið tjá sig þegar Fréttablaðið ræddi við hann fyrir hádegi í gær og sagðist vera á fundi. Hann bað um að haft yrði samband við hann eftir hádegi en ekki náðist í Anton á ný þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira