Bækurnar finnast og og Björt kemst í ró Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. febrúar 2015 14:30 Valgerður, Una og Jón Svavar í hlutverkum sínum.
Björt er í pössun hjá afa sínum og ömmu í sumarbústað, en þar er lítið við að vera og henni leiðist. Í bústaðnum eru engin nútímatæki eins og tölvur og snjallsímar. Afinn og amman reyna að hafa ofan af fyrir henni, en hún gerist æ óþægari. Að lokum finnast bækur í bústaðnum og Björt kemst í ró. Þannig er efni sýningarinnar Björt í sumarhúsi lýst. Þar leikur Una Ragnarsdóttir titilhlutverkið, Valgerður Guðnadóttir og Jón Svavar Jósefsson eru í hlutverki ömmunnar og afans og Bragi Bergþórsson er í hlutverki hlaupagikks, ókindar og draugs. Björt í sumarhúsi verður sýnd í Tjarnarbíói á morgun, laugardag, klukkan 15 og á sama tíma um næstu helgi. Tónlistin er eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og textar eftir Þórarin Eldjárn. Þeir byggjast á ljóðum úr bókinni Gælur, fælur og þvælur. Kristína Berman hefur skapað söngleiknum fjörlega umgjörð, Jóhann Bjarni Pálmason sér um lýsingu og Ágústa Skúladóttir leikstýrir. Töfrahurð og Óperarcticfélagið standa að baki uppsetningunni.
Menning Mest lesið Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Staðgöngumóðir var það Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið Macklemore svarað Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Lífið Fleiri fréttir Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira