Á maganum úti í móa Skjóðan skrifar 18. mars 2015 12:00
Utanríkisráðherra hefur í umboði ríkisstjórnarinnar farið sendiferð með lettersbréf til handa ráðamönnum í ESB. Menn eru ósammála um efni bréfsins og hefur það þó verið birt opinberlega á tveimur tungumálum. Sumir halda því fram að það hafi enga merkingu aðra en þá að árétta alkunna stefnu ríkisstjórnarinnar. Aðrir fullyrða að með þessu litla bréfi sé formlega búið að slíta aðildarviðræðum Íslands við ESB. Bréfið átti að koma í veg fyrir vandræðagang ríkisstjórnarinnar með málið inni á Alþingi vegna boðaðrar þingsályktunartillögu um formleg viðræðuslit. Ríkisstjórnin prófaði þá leið í fyrra og varð að draga tillöguna til baka þegar ljóst var að hún lamaði þingstörf og fór gegn vilja kjósenda. Já, þetta þingræði er full þunglamalegt, sérstaklega fyrir ráðherra sem hafa brýnum erindum að gegna í útlöndum svona að jafnaði. Nú er allt orðið vitlaust í þjóðfélaginu þrátt fyrir að engin kæmi fram þingsályktunin. Stjórnarandstaðan boðar hertöku þingmála. Forystumenn ríkisstjórnarinnar eru sakaðir um stórkostlegustu kosningasvik síðari tíma vegna þess að þeir lofuðu allir sem einn að þjóðin fengi að ráða framtíð ESB umsóknarinnar og að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram á þessu kjörtímabili. Sú herkænska ríkisstjórnarinnar að halda málinu frá þinginu virðist hafa snúist upp í andhverfu sína. ESB málið er ekki fyrsta málið sem ríkisstjórnin lendir í miklum vandræðum með. Stjórnarflokkarnir ná ekki saman um fiskveiðistjórnun. Í skattamálum hefur Sjálfstæðisflokkurinn snúið Framsókn niður. Skuldaleiðrétting hefur valdið vonbrigðum. Verðtryggingin verður ekki afnumin. Ekki blasir við að fjármagnshöft verði afnumin á næstunni þrátt fyrir að öllum sé ljós nauðsyn þess. Framtíðarsýn skortir. Í stuttu máli er hver höndin upp á móti annrri innan ríkisstjórnarmeirihlutans. Engin samstaða um helstu mál og fylgi beggja stjórnarflokka nærri sögulegu lágmarki samkvæmt könnunum. Sé ríkisstjórninni líkt við bíl þá er sá bíll pikkfastur á maganum lengt úti í móa. Kannski þessi ESB ólæti og viðbrögð stjórnarandstöðunnar gagnist stjórnarliðum við að benda á stjórnarandstöðuna og kenna henni um eigin vandræðagang. Er ESB sprengjan kannski ekkert annað en smjörklípa til að dreifa athyglinni frá því að ríkisstjórnin er nánast óstarfhæf? Greinilega var það misráðið af ríkisstjórninni að hreyfa við ESB málinu nú. Almenn og þegjandi sátt virtist komin á um að engin þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um ESB á kjörtímabilinu og málið væri í salti. Nú hefur sú sátt verið rofin. Ríkisstjórnin hefur glatað tiltrú og verður vart meira en eins konar starfsstjórn fram að næstu kosningum, sem óhjákvæmilega munu snúast um þjóðarvilja um framhald ESB umsóknarinnar.Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum. Hún er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
Alþingi Skjóðan Mest lesið Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Vill laga „hringekju verðtryggingar og hárra vaxta“ Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Fleiri fréttir Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Sjá meira