Skipulagsráðherra ríkisins Guðmundur Kristján Jónsson skrifar 10. apríl 2015 07:00 Forsætisráðherra ákvað á dögunum að sýna þjóðinni í verki af hverju honum tókst ekki að ljúka námi sínu í skipulagsfræðum við Oxford á sínum tíma. Það sem margir héldu að væri aprílgabb virðist eftir allt saman hafa verið viðleitni ráðherrans til að viðurkenna veikleika sína. Einlægni er sannarlega ekki öllum gefin og því er stundum nauðsynlegt að taka viljann fyrir verkið. Það er reyndar spurning hvort alþingismenn og konur eigi að tjá sig um skipulagsmál í Reykjavík á sama tíma og Alþingisreiturinn sjálfur er ein rjúkandi rúst. Stærstur hluti reitsins er nýttur sem óskipulagt bílastæði, horn Vonarstrætis og Tjarnargötu er víggirt malarplan eftir fornleifauppgröft sem lauk árið 2012 og Kirkjustrætið er nær ófært gangandi vegfarendum þar sem búið er að girða fyrir gangstéttina. Flestar fréttir um stöðu mála á reitnum eru frá árinu 2008 og hvergi á öllum girðingaflaumnum má finna upplýsingar um fyrirhugaða uppbyggingu eða áætluð verklok. Vissulega er viðeigandi að á 100 ára afmæli fullveldisins verði lokið við áform um uppbyggingu á Alþingisreitnum en það er algjör óþarfi að leita 100 ár aftur í tímann og snúa Guðjóni Samúelssyni við í gröfinni til að svo megi verða. Núgildandi deiliskipulag frá árinu 2007 er prýðilegt þrátt fyrir að höfundar þess séu ekki enn komnir undir græna torfu og greinargerð þess ekki skrifuð í anda Jónasar frá Hriflu. Deiliskipulagið leysir vel húsnæðisvanda Alþingis og með framfylgd þess yrði fyllilega komið til móts við hagkvæmnissjónarmiðin sem fram koma í þingsályktunartillögunni góðu. Mestu máli skiptir að bæta ásýnd þessa mikilvæga reits sem allra fyrst. Annars öfunda ég ekki skipulagsfræðinga Framsóknarflokksins um þessar mundir. Það er eitt að komast í samband við framliðna húsameistara en annað að koma flugvelli fyrir í Efstaleiti þegar flokkurinn hefur flutt Landspítalann. Staðsetning flugvallarins rétt við sjúkrahús er forsenda þess að landsbyggðin lifi af, ekki satt? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Guðmundur Kristján Jónsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun