Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson og Ásta Stefánsdóttir skrifa 2. nóvember 2026 12:17 Fjármálaráðherra hélt opinn fund á Selfossi sunnudaginn 1. nóvember. Á fundinum fékkst staðfesting á því að markmið með álagningu náttúru- og innviðagjalds á þrjá ferðamannastaði í Bláskógabyggð, Þingvelli, Gullfoss og Geysi, sé að fækka ferðamönnum á Gullna hringnum. Á hvað vegferð er ríkisstjórnin með slíkum aðgerðum? Gullni hringurinn, sem ferðamannaleið, var upphaflega fyrst og fremst tekjulind fyrir ferðaþjónustu í Reykjavík, þar sem ferðamenn gistu og neyttu matar, leigðu bíl eða keyptu sér rútumiða og fóru í dagsferðir um uppsveitir Árnessýslu. Dugmiklu fólki, sem hafði kjark og þor til að skapa störf við Gullna hringinn, hefur tekist að breyta þessu mynstri að nokkru leyti, með því að byggja upp afþreyingu, veitingaþjónustu og gistingu á svæðinu og fá þar með ferðamenn til að staldra lengur við. Það hefur skapað vöxt á svæðinu, aukin lífsgæði, fjölgun íbúa, húsnæðisuppbyggingu, fjárfestingu í innviðum og störf af ýmsu tagi, svo fátt eitt sé talið. Áform um að fækka ferðamönnum á svæðinu koma sem blaut tuska í andlitið á íbúum, eigendum fyrirtækja og stjórnendum sveitarfélaganna. Í Bláskógabyggð eru fjölmörg lítil fjölskyldufyrirtæki sem hafa byggst upp á síðustu árum. Í Bláskógabyggð koma 40% atvinnutekna úr ferðaþjónustu. Ljóst er að samdráttur mun fækka störfum, minnka tekjur fyrirtækja og draga úr útsvarstekjum sveitarfélaganna á svæðinu. Fólk mun missa vinnuna. Fyrirtæki munu verða gjaldþrota. Samdráttur í tekjum sveitarfélagsins leiðir til þess að draga þarf saman í rekstri og möguleikar til fjárfestingar og uppbyggingar minnkar. Þeir þrír staðir sem gjaldtakan beinist að eru staðir sem geta tekið við auknum fjölda ferðamanna. Þar hefur átt sér stað uppbygging, bæði fyrir tilstilli einkaaðila og ríkisins, sem gerir það að verkum að staðirnir þola talsvert margar heimsóknir. Allir eru þeir þannig staðsettir að íbúar finna ekki mikið fyrir ferðamannafjöldanum. Allir geta þeir tekið við fleiri gestum, en þá ákveður ríkisstjórnin að það sé betra að senda ferðamennina annað. Senda þá á svæði sem eru ekki jafn vel í stakk búin til að taka við gestunum. Staði þar sem uppbygging innviða hefur enn ekki átt sér stað. Staði þar sem t.d. vetrarþjónusta á vegum er í enn verra horfi en á Suðurlandi. Hvaða skynsemi er í þessu? Hvers vegna er verið að refsa þeim sem hafa lagt allt undir? Hvaða hag hefur ríkissjóður af því að endurdreifa ferðamönnum um landið? Ekki skapar það auknar tekjur ef ferðamönnum fjölgar ekki og leggja þarf fjármagn í uppbyggingu annarra svæða. Farsæl dreifing ferðamanna fæst með því að skapa fleiri segla, staði sem fólk vill heimsækja, ekki með því að hrekja fólk úr einum stað í annan. Við skorum á þingmenn Suðurkjördæmis að láta málið til sín taka og stöðva þessa aðför að landshlutanum. Helgi Kjartansson, oddviti BláskógabyggðarÁsta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skattar, tollar og gjöld Bláskógabyggð Þingvellir Geysir Gullfoss Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Sjá meira
Fjármálaráðherra hélt opinn fund á Selfossi sunnudaginn 1. nóvember. Á fundinum fékkst staðfesting á því að markmið með álagningu náttúru- og innviðagjalds á þrjá ferðamannastaði í Bláskógabyggð, Þingvelli, Gullfoss og Geysi, sé að fækka ferðamönnum á Gullna hringnum. Á hvað vegferð er ríkisstjórnin með slíkum aðgerðum? Gullni hringurinn, sem ferðamannaleið, var upphaflega fyrst og fremst tekjulind fyrir ferðaþjónustu í Reykjavík, þar sem ferðamenn gistu og neyttu matar, leigðu bíl eða keyptu sér rútumiða og fóru í dagsferðir um uppsveitir Árnessýslu. Dugmiklu fólki, sem hafði kjark og þor til að skapa störf við Gullna hringinn, hefur tekist að breyta þessu mynstri að nokkru leyti, með því að byggja upp afþreyingu, veitingaþjónustu og gistingu á svæðinu og fá þar með ferðamenn til að staldra lengur við. Það hefur skapað vöxt á svæðinu, aukin lífsgæði, fjölgun íbúa, húsnæðisuppbyggingu, fjárfestingu í innviðum og störf af ýmsu tagi, svo fátt eitt sé talið. Áform um að fækka ferðamönnum á svæðinu koma sem blaut tuska í andlitið á íbúum, eigendum fyrirtækja og stjórnendum sveitarfélaganna. Í Bláskógabyggð eru fjölmörg lítil fjölskyldufyrirtæki sem hafa byggst upp á síðustu árum. Í Bláskógabyggð koma 40% atvinnutekna úr ferðaþjónustu. Ljóst er að samdráttur mun fækka störfum, minnka tekjur fyrirtækja og draga úr útsvarstekjum sveitarfélaganna á svæðinu. Fólk mun missa vinnuna. Fyrirtæki munu verða gjaldþrota. Samdráttur í tekjum sveitarfélagsins leiðir til þess að draga þarf saman í rekstri og möguleikar til fjárfestingar og uppbyggingar minnkar. Þeir þrír staðir sem gjaldtakan beinist að eru staðir sem geta tekið við auknum fjölda ferðamanna. Þar hefur átt sér stað uppbygging, bæði fyrir tilstilli einkaaðila og ríkisins, sem gerir það að verkum að staðirnir þola talsvert margar heimsóknir. Allir eru þeir þannig staðsettir að íbúar finna ekki mikið fyrir ferðamannafjöldanum. Allir geta þeir tekið við fleiri gestum, en þá ákveður ríkisstjórnin að það sé betra að senda ferðamennina annað. Senda þá á svæði sem eru ekki jafn vel í stakk búin til að taka við gestunum. Staði þar sem uppbygging innviða hefur enn ekki átt sér stað. Staði þar sem t.d. vetrarþjónusta á vegum er í enn verra horfi en á Suðurlandi. Hvaða skynsemi er í þessu? Hvers vegna er verið að refsa þeim sem hafa lagt allt undir? Hvaða hag hefur ríkissjóður af því að endurdreifa ferðamönnum um landið? Ekki skapar það auknar tekjur ef ferðamönnum fjölgar ekki og leggja þarf fjármagn í uppbyggingu annarra svæða. Farsæl dreifing ferðamanna fæst með því að skapa fleiri segla, staði sem fólk vill heimsækja, ekki með því að hrekja fólk úr einum stað í annan. Við skorum á þingmenn Suðurkjördæmis að láta málið til sín taka og stöðva þessa aðför að landshlutanum. Helgi Kjartansson, oddviti BláskógabyggðarÁsta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun