Óskar eftir ófrjóum einhleypum hojurum Guðrún Ansnes skrifar 11. maí 2015 08:30 Sigga Soffía segir alla finna eitthvað við sitt hæfi á sýningunni, en hún nær yfir öll möguleg listform. Gestir þurfa ekki að óttast fugladrit eða dúfnaslag, því þeim sé gaumgæfilega haldið á réttum stöðum á sviðinu. Vísir/Nanna Dís „
Ég leita nú logandi ljósi að ófrjóum einhleypum hojurum sem eru til í að leika á móti Ingvari E. Sigurðssyni, Sögu Garðarsdóttur og Atla Rafni Sigurðarsyni á fjölum Þjóðleikhússins eftir helgi,“ segir Sigríður Soffía Níelsdóttir, höfundur dansleikhúsverksins Svartra fjaðra, sem mun marka upphaf 29. Listahátíðar í Reykjavík. Dúfurnar leika veigamikið hlutverk í sýningunni, en pattstaða kom aldeilis upp þegar í ljós kom að dúfurnar, sem hún hafði ætlað að nota í sýningunni, voru fjarri góðu gamni, nú liggjandi á eggjum. „Ég vann með þessum fuglum í fyrra og sá mér leik á borði að hafa þær með í þessari sýningu, nema hvað þær brugðu sér í fæðingarorlof á ögurstundu,“ segir Sigga Soffía og ber örlítið á geðshræringu í hlátrinum sem eftir fylgir. Má með sanni segja að allt sé í hers höndum, en verði staðgenglar fuglanna ekki komnir í hús á morgun er ólíklegt að leyfi fáist fyrir fiðurfénaðinum innan veggja Þjóðleikhússins. Kosturinn við þessa sérstöku fugla, er að þeir þykja þægilegir til meðferðar á sviði, eru þungir á sér og fremur latir til flugs, sem er gríðarlega hentugt í ljósi þess að fuglarnir hafa ekki heimild til að fljúga yfir áhorfendur í sal Þjóðleikhússins. „Þegar þeir upplifa ógn þenja þeir út bringuna og hreyfa sig eins og tangódansarar um sviðið sem er virkilega flott,“ segir Sigga en bætir þó við að hún sé búin að setja saman plan B ef illa gengur að fá fugla til samstarfs í tæka tíð, en þó voni hún innilega að svo fari ekki. Undirbúningsferli sýningarinnar hefur verið heldur skrautlegt en fyrir skemmstu tognaði Ingvar í baki er hann steig trylltan dans á æfingu. „Atli Rafn var sem betur fer afar úrræðagóður og braut af þúsund ára gömlum jökulís sem notaður er í sýningunni um Fjalla-Eyvind og Höllu, kældi bólgurnar niður hjá Ingvari og kom honum þannig stórkostlega til bjargar,“ útskýrir Sigga. Hún segir jafnframt frá öðrum dansara í sýningunni sem dansaði fram af sviðinu á föstudag og er nú óljóst hvort hún verði sjálf að bregða sér í hlutverkið. „Ég vona ekki, en sjáum hvað setur,“ segir hún að lokum, og viðurkennir fyrir blaðamanni að sér þyki leikhúsverkið mun erfiðara viðureignar en sjálft íslenska veðrið sem hún hefur þurft að kljást við þegar hún hefur sett upp flugeldasýnu Menningarnætur undanfarin tvö ár. Sigga Soffía biður þá sem mögulega geta séð af dúfum í sýninguna að hafa samband við fyrsta tækifæri og bendir áhugasömum á sigridursoffia@gmail.com.
Listahátíð í Reykjavík Menning Mest lesið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Tískudrottning og eigandi Drykk bar selja slotið Lífið Keppti við Prettyboitjokkó í kuldaskóm Lífið Biden móment hjá Nick Cave í Eldborg Lífið Simmi Vill spilaði Skítakall við nýju kærustuna Lífið Leysir frá brandaraskjóðunni Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira