Maður endar í raun alltaf nakinn Magnús Guðmundsson skrifar 6. júní 2015 11:30 Gyða Valtýsdóttir fæst við fjölbreytta tónlist og vinnur víða um veröldina. Visir/Ernir „
Þetta er svona verk sem er hálf-impróvíserað og mig hefur langað til þess að gera síðan ég var átján ára en aldrei fundist ég tilbúin til þess fyrr en núna,“ segir Gyða Valtýsdóttir um verkið Galagalactic sem hún ætlar að flytja, vædd boga og sellói, á tónleikum í Mengi kl. 9 í kvöld en tónleikarnir eru hluti af Listahátíðinni í Reykjavík. Verkið er óður til eilífðarinnar, snýst í áttu í allar áttir samtímis. „Ég er með smá fordóma fyrir konseptverkum en engu að síður er þetta eiginlega konseptverk. Það er alltaf gott að mæta fordómum sínum. Ég er mikið að hugleiða tímann þessa dagana og sambandið við hann, hvernig hann hagar sér og hvernig við skynjum hann. Okkur finnst hann alltaf tifa og líða en takturinn breytist stöðugt eftir því hvernig við eigum við hann. Ég sem yfirleitt í rauntíma – ef hann er til – það kallast víst að spinna og ég reyni að nálgast lífið á sama hátt.“ Gyða Valtýsdóttir hóf tónlistarferilinn á táningsaldri með hljómsveitinni múm. Hún yfirgaf sveitina til að einbeita sér að klassísku tónlistarnámi og lærði meðal annars í Rimsky-Korsakov Conservatory í St. Pétursborg og Hochschule für Music í Basel, þar sem hún lauk meistaranámi í sellóleik hjá Thomas Demenga og frjálsum spuna hjá Walter Fähndrich. „Ég hætti í múm eftir að við gáfum út aðra plötuna okkar, Loksins erum við engin, og hóf nám í Listaháskólanum. Mig langaði að stúdera eitt hljóðfæri alla leið, það var einhver leit að frelsi held ég. En svo vaknaði ég upp einn daginn í klassísku tónlistarnámi í Sviss af öllum stöðum og hugsaði: Var ég ekki að leita að frelsi? En það getur verið gott að kynnast öllum áttum og andstæðum og verða smá áttavilltur til þess að finna sína leið. Maður lærir og aflærir, afklæðir sig svo og endar í raun alltaf nakinn, en þá er maður búinn að ganga í gengum svona alkemíska umbreytingu. Í þessu verki verð ég einmitt mjög fáklædd,“ segir Gyða og glottir.Visir/ErnirGyða er því að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni og vinnan tekur hana víða. „Ég er að vinna mikið með Josephine Foster og var að klára upptökur með Colin Stetson. Ég hef einnig spilað með múm síðustu árin og spila reglulega með manninum mínum, Shahzad Ismaily.“ Hún þarf aðeins að hugsa sig um spurð að því hvar hún búi. „Jú, ætli ég búi ekki á Íslandi en annars á ég heima á flakki. Ég fæst við ýmislegt og hef að undanförnu verið að vinna í Marokkó og New York og svo virðist ég oft enda óvart í Istanbúl. Ég veit ekki af hverju.“ Gyða telur að tónlistarheimurinn sé að breytast, þá sérstaklega milli klassískrar og ó-klassískrar tónlistar. „Í raun á þetta við um allt í heiminum, búið er að fara í öfgar með aðskilnað allra greina en nú er allt að renna saman, vísindin eru orðin mystík og mystíkina er nú loksins hægt að útskýra og sanna. Sýndarveruleikinn er orðinn að raunveruleika á sama tíma og við komumst að því að það er ekkert svo raunverulegt við veruleikann. við erum í raun áttavilltar leikandi verur á flakki í tíma og rúmi.“
Listahátíð í Reykjavík Menning Mest lesið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið „Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Lífið Kolféll fyrir Amsterdam og hollenskum strák Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan Lífið Límdi fyrir munninn á öllum við borðið Lífið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Fleiri fréttir Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira