Boekie Woekie er okkar leikvöllur í listinni 9. janúar 2016 11:00 Hrafnhildur Helgadóttir myndlistarmaður, Þorgerður Ólafsdóttir, formaður Nýlistasafnsins, Rúna Þorkelsdóttir og Jan Voss sem bæði voru á meðal stofnenda Boekie Woekie og Nýló. VÍSIR/Stefán
Í dag kl. 16 verður opnuð fyrsta sýning ársins í Nýlistasafninu í Reykjavík en safnið er til húsa í Völvufelli í Breiðholti. Hér er á ferðinni sérdeilis forvitnileg sýning sem kallast Boekie Woekie, 30 ár – Books and more by Artists. Boekie Woekie er listamannarekin bókabúð, útgáfufélag og sýningarrými í Amsterdam og einn helsti vettvangur bókverka í Evrópu og þó víðar væri leitað og á búðin þrjátíu ára starfsafmæli um þessar mundir. Rúna Þorkelsdóttir myndlistarkona er á meðal stofnenda Boekie Woekie og hún segir að það séu ein þrjú þeirra sem hófu þetta ævintýri á sínum tíma sem taka þátt í sýningunni í Nýló að þessu sinni. „Auk mín eru það Henriëtte van Egten og Jan Voss sem eru núverandi aðstandendur búðarinnar og svo bætast við þau Hrafnhildur Helgadóttir og Brynjar Helgason. Við höfum nefnilega haft þann háttinn á í gegnum tíðina að taka með okkur í samsýningar og slíkt þá listamenn sem eru að vinna hjá okkur hverju sinni. Nýlistasafnið bauð okkur svo að koma og sýna í tilefni af þrítugsafmælinu og það vill nú þannig til að við erum öll þrjú sem stöndum að Boekie Woekie einnig meðlimir í Nýlistasafninu frá upphafi. Eitt af því sem við erum að sýna núna er raunstærð af fyrstu búðinni okkar sem við lítum á sem skúlptúr og prentum út lista yfir alla titlana sem eru í búðinni núna. Við erum náttúrulega myndlistarmenn, ekki bara bókagerðarfólk, og við vinnum í alls konar miðla. Það eru bæði myndir, málverk og prentverk á veggjum hérna hjá okkur og svo líka skúlptúrar. En Boekie Woekie er í raun eins konar leikvöllur. Þetta er bókabúð með listaverkabókum og við tökum líka inn slíkar bækur eftir aðra. Að auki þá er þetta líka sýningarrými og ákveðið vinnukonsept fyrir okkur í myndlistinni. Þetta er í raun okkar myndlist í þessu sérstaka formi. Þegar við byrjuðum þá vorum við minnsta bókabúð í Amsterdam en eftir að við fluttum 1991 þá breyttist það og þetta hefur mikið vaxið og dafnað á þessum þrjátíu árum.“ Boekie Woekie býr að rótgrónum tengslum við íslenska listasenu, spratt úr ekki ólíkum jarðvegi og Nýló og segja má að ákveðinn samhljómur sé á milli tilveru þeirra. Bæði Nýlistasafnið og Boekie Woekie eru stofnuð og rekin af listamönnum og hafa hvort um sig verið mótandi afl innan myndlistarinnar með því að vera vettvangur fyrir sýningar yngri jafnt sem eldri kynslóðar listamanna. Rúna segir að þessi tengsl á milli Íslands og Hollands í Boekie Woekie liggi ekki einvörðungu í gegnum hana. „Jan Voss var að kenna hér í Myndlistarskólanum sem ungur maður og ég var á meðal nemenda á þeim tíma. En það var Dieter Roth, góður vinur Harðar Ágústssonar, þáverandi skólastjóra, sem sendi Jan hingað og til hans. Þar byrja Íslandsferðir Jans Voss árið 1971. Við kynnumst svo mun síðar í gegnum íslenska myndlistarmenn í Amsterdam. Við Jan Voss eigum svo bæði sterkar tengingar við Hjalteyri og eigum þar bæði hús sem við verjum miklum tíma í á sumrin.“ Það hefur löngum verið mikill straumur íslenskra mynd- og tónlistarnema til Amsterdam í nám og Rúna bendir á að það verði unnið með þessa tengingu við opnunina í dag. „Einn af tónlistarstúdentunum, Gunnar Gunnsteinsson, ætlar að frumflytja tónfræði-impróvísasjónkafla úr Sjaldheyrðri tónlist eftir Dieter Roth við opnunina. Þannig að það verður bæði margt að sjá og heyra við opnunina og tilefni fyrir þá fjölmörgu listamenn sem eiga tengsl við Holland að líta við og rifja upp gömul kynni.“
Menning Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Fleiri fréttir Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Auður segir skilið við Gímaldið Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Frumsýning á Vísi: Skoppa og Skrítla bjóða krökkunum í jólapartý Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Sjá meira