Ísland getur enn farið með fjögur stig inn í milliriðil | Allt eða ekkert leikur á móti Króatíu? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2016 20:00 Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/Valli
Íslenska handboltalandsliðið tapaði í dag fyrir Hvít-Rússum í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í Póllandi. Íslenska liðið hefði tryggt sig áfram með sigri í dag en nú þarf ýmislegt að falla með íslenska liðinu til þess að strákarnir okkar komist áfram upp úr riðlinum. Noregur vann Króatíu í hinum leik riðilsins og öll liðin í riðlinum eru þar með jöfn með tvö stig. Í lokaumferðinni mætast lið Noregs og Hvíta-Rússlands annarsvegar og lið Íslands og Króatíu hinsvegar. Hvíta-Rússland getur tryggt Íslandi sæti í milliriðlinum með því að vinna Noreg í fyrri leiknum á þriðjudaginn en jafntefli eða sigur Norðmanna myndi þýða að Ísland yrði að ná í stig í móti Króötum í seinni leik dagsins til að komast áfram á kostnað Hvít-Rússa. Vinni Ísland og Noregur í lokaumferðinni þá færi Ísland aftur á móti áfram í milliriðilinn með fjögur stig eða fullt hús stiga. Það eru því allt eins líkur á því að íslenska liðið lendi í leik í þeirri stöðu í leiknum á móti Króatíu að tap þýddi að Ísland væri á leiðinni heim en sigur þýddi að íslenska liðið væri með fjögur stig og yrði þar með í frábærum málum í milliriðlinum. Hér fyrir neðan er farið yfir stöðuna í B-riðlinum og það má sjá á henni að allt getur ennþá gerst í þessum æsispennandi riðli.Svona kemst Íslands áfram í milliriðillinnHvíta Rússland vinnur Noreg - Ísland komið áfram [Noregur eða Króatía úr leik]Hvíta Rússland og Noregur gera jafntefli - Ísland verður að fá stig á móti Króatíu [Hvíta Rússland úr leik]Noregur vinnur Hvíta Rússland - Ísland verður að fá stig á móti Króatíu [Hvíta Rússland úr leik]Hversu mörg stig fer Íslands með í milliriðilinn, komist liðið áfram:4 stig Ísland vinnur Króatíu og Noregur vinnur Hvíta-Rússland [Ísland 4 stig, Noregur 2 stig, Króatía 0 stig - Hvíta Rússland úr leik]3 stig Ísland gerir jafntefli við Króatíu og Noregur vinnur Hvíta-Rússland [Ísland 3 stig, Noregur 2 stig, Króatía 1 stig - Hvíta Rússland úr leik]2 stig Ísland vinnur Króatíu og Hvíta-Rússland vinnur Noreg [Hvíta-Rússland 2 stig, Ísland 2 stig, Noregur 2 stig - Króatía úr leik]1 stig Ísland gerir jafntefli við Króatíu og Hvíta-Rússland vinnur Noreg [Króatía 3 stig, Hvíta-Rússland 2 stig, Ísland 1 stig - Noregur úr leik]0 stig Hvíta-Rússland vinnur Noreg og Ísland tapar á móti Króatíu [Króatía 4 stig, Hvíta Rússland 2 stig, Ísland 0 stig - Noregur úr leik] Það bætist síðan enn við útreikninginn endi leikur Hvít-Rússa og Norðmanna með jafntefli.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti „Ég verð að spila“ Enski boltinn Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Fleiri fréttir „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Sjá meira