Guðjón Valur: Ég vil fá meiri pressu á okkur sem fyrir eru í landsliðinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. janúar 2016 11:00 Guðjón Valur Sigurðsson fer fyrir strákunum á enn einu stórmótinu. vísir/anton brink
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði karlalandsliðsins í handbolta, var sérstakur gestur fyrstu útgáfu Handvarpsins 2016, hlaðvarps Vísis um stórmótin í handbolta. Guðjón Valur ræddi um um handbolta frá öllum hliðum í rúman klukkutíma og bar þar margt á góma. Íslenska landsliðið hefur upplifað miklar hæðir og töluverðar lægðir undanfarin átta ár, allt frá verðlaunum á stórmóti til katastrófu eins og á HM í Katar í fyrra. Strákarnir okkar hafa smám saman verið að dragast aftur úr allra bestu liðunum en þar er Danmörk gott dæmi. Fyrir 4-5 árum síðan var Ísland að vinna Danmörku nokkuð reglulega en undanfarin misseri hafa strákarnir okkar ekki átt séns í danska landsliðið. Guðjón Valur viðurkennir að þessi lægð sé erfiðari en aðrar þar sem íslenska liðið var orðið eitt af fjórum til fimm bestu landsliðum heims á árunum 2008-2012.Guðjón Valur í leik gegn Portúgal í síðustu viku.vísir/anton brinkHvar eru leikmennirnir? „Sú lægð var gríðarlega erfið. Það voru í raun bara Frakkar sem voru miklu betri en við og miklu betri en allir. Danir eru einfaldlega í dag eitt af topp þremur til fjórum liðum í heiminum auk Spánverja,“ segir Guðjón Valur. „Restin er tiltölulega jöfn og við vorum nokkuð framarlega í þessum hópi. Ég sagði fyrir nokkrum árum að ég hafði áhyggjur af því hvað væri að koma upp hjá okkur.“ Leikmenn eins og Guðjón Valur, Snorri Steinn, Róbert Gunnarsson, Alexander Petersson, Aron Pálmarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson hafa borðið liðið uppi undanfarin ár. Oft er kallað eftir að yngt sé upp í liðinu en það er ekki svo einfalt, segir fyrirliðinn. „Gagnrýnin á liðið sem kom á tímabili var að við erum að verða of gamlir. Hin liðin voru að verða betri og við áttum að fara að yngja upp en spurningin er með hverju ætlarðu að yngja liðið upp. Hvar eru leikmennirnir?“ segir Guðjón Valur. „Ég er vonandi ekki í landsliðinu af því ég heiti Guðjón Valur Sigurðsson og er búinn að spila svona og svona marga landsleiki. Ég vona að ég sé í landsliðinu því ég er að sanna mig í hverri einustu viku og á hverjum einasta degi.“ „Það hefur ekki verið nógu mikil endurnýjun hjá okkur því til dæmis hefur deildin hérna heima farið afskaplega mikið niður getulega séð síðustu fimmtán árin,“ segir hann.Guðjón Valur fagnar marki í bronsleiknum gegn Póllandi á EM 2010.vísir/gettyEkki hægt að skamma menn fyrir að vera ekki nógu stórir Guðjón Valur bendir á ungu leikmennina sem eru að koma upp hjá Dönum. Hann segir þá geta spilað nokkrar stöður á vellinum og bæði vörn á sókn á meðan þeir sem koma inn nýir hjá Íslandi spili annað hvort vörn eða sókn. „Það er ekki hægt að skamma neinn fyrir að vera ekki nógu stór, en það er hægt að velta því fyrir sér hvers vegna við fáum ekki nógu marga líkamlega sterka stráka inn,“ segir Guðjón. „Ef þú horfir til dæmis á Frakkana þá geta strákarnir sem eru að koma inn þar stokkið tvo metra upp í loftið eða eru tveir metrar á hæð og geta hlaupið jafn hratt og hornamaður.“ „Þeir eru gríðarlega líkamlega sterkir en eru ekki með sama leikskilning og Karabatic eða Narcisse. En þeir fá að læra af þeim,“ segir Guðjón.Baráttan hjá strákunum okkar hefst á föstudaginn.vísir/anton brinkErum ekki stór þjóð Í íslenska liðinu í dag eru leikmenn á borð við Ólaf Guðmundsson og Rúnar Kárason sem eru gríðarlega öflugir handboltamenn hafa glímt við mikil meiðsli sem hafa komið í veg fyrir uppgang þeirra hjá landsliðinu. „Það er kynslóð hjá okkur fædd svona 86 og 87 og upp í 90. Þeir eru allir með hæfileika en hafa verið gríðarlega óheppnir með meiðsli. Þar er kannski skarðið sem vantar hjá okkur. Margir þeirra lentu í alvarlegum meiðslum eins og bakmeiðslum eða hnémeiðslum,“ segir Guðjón Valur. „Þetta eru strákar sem hefðu átt að koma inn og pressa meira á okkur sem fyrir eru. Það eru einfaldlega ekki til strákar eða menn sem hægt er að taka inn hjá okkur. Við erum náttúrlega ekki stór þjóð.“ Umræðan um að yngja upp í landsliðinu fer eilítið í taugarnar á fyrirliðanum því hann spyr sig hvaða leikmenn eru þetta sem eiga að taka stöður lykilmannanna.Guðjón Valur hefur verið í landsliðinu síðan 1999.vísir/stefánGóður eða lélegur „Það er mörgum sem finnst þeir eiga að fá sénsinn og komast í landsliðið. Sumir hafa komið inn og ekki nýtt tækifærið eða ekki verið betri en þeir sem eru fyrir. Þegar er verið að kalla eftir að hópurinn sé yngdur upp þá finnst mér fólk einfaldlega vera að tala um eitthvað sem það veit ekkert um,“ segir Guðjón Valur. „Það horfir bara á lista, sér aldur manna og segir að við séum of gamlir. Ég segi alltaf að það eigi ekki að horfa á hvaðan maður kemur, hvernig maður er vaxinn eða hvernig maður er á litinn. Annað hvort ertu góður eða lélegur.“ Guðjón Valur fagnar samt að vera kominn með stærri hóp og menn sem munu vonandi fyrir alvöru gera sig gildandi í landsliðinu á EM í Póllandi. Fyrirliðinn vill að menn standi sig svo hann og aðrir finni fyrir nýjum mönnum anda ofan í hálsmálið á sér. „Í fyrsta skipti í langan tíma erum við með breiðan hóp, en ég hef svolitlar áhyggjur af því sem er að koma. Það er talað um efnilega stráka hér og efnilega stráka þar og ég vona svo sannarlega að ég hafi rangt fyrir mér,“ segir hann. „Ég vil fá meiri pressu á okkur sem fyrir eru. Það er erfitt að koma inn og sýna sig og sanna strax, en maður sér það á strákum sem eru að koma inn í landsliðið úr deildinni hér heima - og ég segi þetta með fullri virðingu án þess að setja mig á háan hest - að það er stórt getubil,“ segir Guðjón Valur Sigurðsson. Allt hlaðvarpið má heyra í spilaranum hér að neðan.
EM 2016 karla í handbolta Tengdar fréttir Umfjöllun: Þýskaland - Ísland 24-27 | Strákarnir svöruðu fyrir tap gærdagsins Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan þriggja marka sigur á Þýskalandi ytra í seinasta æfingarleik liðsins fyrir EM í handbolta sem hefst á föstudaginn. 10. janúar 2016 16:00 Tandri Már ekki til Póllands Dettur úr 18 manna landsliðshópi Íslands fyrir EM í Póllandi. 12. janúar 2016 15:01 Guðjón Valur aftur til Löwen Landsliðsfyrirliðinn í handbolta yfirgefur Barcelona í sumar og spilar aftur í Þýskalandi. 11. janúar 2016 08:48 Þeir yngri þurfa að fá tækifæri Strákarnir okkar hefja leik á EM á föstudaginn en undirbúningi lauk formlega á sunnudaginn. Enn á eftir að skera niður um einn leikmann. Fréttablaðið leitaði til þriggja sérfræðinga til að fara yfir stöðuna. 12. janúar 2016 06:00 Mest lesið Búin í aðgerð og ber sig vel eftir að hafa fengið skauta í augað Sport Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Handbolti Fékk skauta í augað á Ólympíuleikunum Sport Enn lengist rúmlega aldar bið Breta eftir krullugulli Sport Doc Zone: Trylltust af fögnuði er Orri bætti við öðru marki sínu Fótbolti Púðurskot hjá Viggó og áfram gengur ekkert hjá Göppingen Handbolti O'Reilly með tvennu og City andar ofan í hálsmál Arsenal Enski boltinn Sex gull af sex mögulegum: Sögulegur sigur Klæbo á Vetrarólympíuleikunum Sport Frank Booker eldri látinn Körfubolti „Mér gæti ekki verið meira sama um stöðuna í ensku úrvalsdeildinni“ Enski boltinn Fleiri fréttir Þorsteinn Leó með fjögur í fjórða sigri Porto í röð Púðurskot hjá Viggó og áfram gengur ekkert hjá Göppingen Þórsarar upp úr fallsæti Valskonur völtuðu yfir Stjörnuna Uppgjör: Fram - ÍR 26-34 | Öruggur og mikilvægur sigur ÍR Eyjakonur höfðu betur í Suðurlandsslagnum Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Snorri beið spenntur eftir ræðu Dags og er sammála honum Viktor Gísli með 48 prósent markvörslu í stórsigri Valsmenn með þriggja stiga forskot á toppnum eftir stórsigur Framarar safna áfram sigrunum eftir Evrópuflakkið Óli P. Ólsen er látinn Burðarás snýr aftur norður en bíður fyrst eftir barni Grínaðist í Antoni: „Við erum báðir rauðhærðir“ „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Mosfellingar enduðu taphrinuna og Haukakonur unnu fyrir norðan Sigurganga stráka Guðjóns Vals heldur áfram en tap hjá Bjarka Díana í lokaprófi og missir af mikilvægum landsleik Ómar Ingi markahæstur þegar Magdeburg tryggði sig inn í átta liða úrslit Elín Klara lék best allra á vellinum Viktor Gísli fagnaði sigri og sæti í átta liða úrslitunum Sara Dögg tekin inn í hópinn fyrir næstu leiki í undankeppni EM Reynir markahæstur í Íslendingaslagnum Fjórða tapið í röð hjá lærisveinum Arnórs Fyrsta tap Gísla og Ómars kom gegn stórveldinu Landin sá til þess að Ísak og Guðmundur fengju silfur Ellefu mörk Viggós dugðu skammt Átta íslensk mörk í fyrsta sigrinum Haukur með næstflest í sigri Sjá meira
Umfjöllun: Þýskaland - Ísland 24-27 | Strákarnir svöruðu fyrir tap gærdagsins Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan þriggja marka sigur á Þýskalandi ytra í seinasta æfingarleik liðsins fyrir EM í handbolta sem hefst á föstudaginn. 10. janúar 2016 16:00
Tandri Már ekki til Póllands Dettur úr 18 manna landsliðshópi Íslands fyrir EM í Póllandi. 12. janúar 2016 15:01
Guðjón Valur aftur til Löwen Landsliðsfyrirliðinn í handbolta yfirgefur Barcelona í sumar og spilar aftur í Þýskalandi. 11. janúar 2016 08:48
Þeir yngri þurfa að fá tækifæri Strákarnir okkar hefja leik á EM á föstudaginn en undirbúningi lauk formlega á sunnudaginn. Enn á eftir að skera niður um einn leikmann. Fréttablaðið leitaði til þriggja sérfræðinga til að fara yfir stöðuna. 12. janúar 2016 06:00